... og þetta er alveg í anda við síðustu færslu hjá mér. Báðir mínir strákar hafa verið þolendur eineltis í skóla, en skólayfirvöld í Hafnarfirði hafa verið treg til að viðurkenna vandann. Það var ekki fyrr en örverpið lá í jörðinni á skólalóðinni og aðvífandi kom ungur strákur í níunda bekk þá, sem eitthvað fór að gerast hér. Og það er gaman að segja frá því að sá hittingur varð að verkefni sem var fjallað um í Umhyggju og víðar, og fékk einhver verðlaun - ef mig misminnir ekki mikið - en ég hef lítið heyrt af því undanfarin ár samt. Verkefnið var "Skólavinur" og byggðist upp á því að krakkar í níunda og tíunda bekk voru "vinir" litlu krakkanna, fengu jafnvel að taka þau úr tíma til að vera aðeins með þeim, og þetta gerði kraftaverk fyrir litlu púkana.
Ekki nóg fyrir örverpið mitt, en vonandi hefur þetta nú gagnast einhverjum öðrum það mikið að vandræði og vesen heyri sögunni til!
En sú sorglega staðreynd að þetta skuli enn vera íslenskur raunveruleiki, styður enn frekar við hafragrauts-kenninguna mína. Er ég ennþá ein um það? Ja, kona spyr sig...
Ekki nóg fyrir örverpið mitt, en vonandi hefur þetta nú gagnast einhverjum öðrum það mikið að vandræði og vesen heyri sögunni til!
En sú sorglega staðreynd að þetta skuli enn vera íslenskur raunveruleiki, styður enn frekar við hafragrauts-kenninguna mína. Er ég ennþá ein um það? Ja, kona spyr sig...
| Ætlaði að pynta þau og drepa |
| Fyrst birt 27.9.2008 | 16:15 | |

Athugasemdir
Hann fór strax að grenja og æpti á mig: "Láttu mig í friði, hvað hef ég gert þér!" Ég spurði hann: "Hvað gerði litli strákurinn þér sem þú varst að berja?" Svar: "Það kemur þér ekkert við. Vert þú ekkert að skipta þér að þessu helvitis ræfillinn þinn. Ég hef ekkert gert þér. Þú ert aumingi! Láttu mig í friði." (!?!?!?!?)
Þeir eru sjálfir ekki miklar hetjur þessir ræflar og tilvonandi handrukkarar, þegar annar stærri kemur til skjalanna. Hitt er athyglisvert, að þessi drengur sem var að berja þennan litla, í slagtogi við annan, virtist ekkert sjá athugavert að lemja sér minni máttar, en fannst það vera hin mesta óskammfeilni af mér að skipta mér að þessu. Ósanngirni í hæsta lagi - að vera truflaður við þessa iðju sína!
Ég tel að einelti sé helsti orsakavaldur haturs út í umhverfið og þjóðfélagið sem orsakar óútskýranlega og að virðist ástæðulausa glæpi svo sem tilgangslausar árásir með vopnum svo sem bareflum, hnífum, eða fjöldamorð í skólum og (fyrrverandi) vinnustöðum með skotvopnum eins og í Finnlandi, Bandaríkunum og fleiri löndum Einelti, hvort sem er framið í skóla af skólasystkinum, af kennurum (sem er algengara en fólk vill viðurkenna, það þekki ég af eigin reynslu), af fjölskyldumeðlumum svo sem eldri bóður eða systur - og það sem er langverst af öllu (og ekki má tala um og lögreglan gerir ekkert í ef kært er í málinu), einelti sumra foreldra á börnin sín. Þá er ég ekki endilega að tala um líkamlegt, heldur einnig og sér í lagi andlega kúgun og ofbeldi. Oft vita foreldrar ekki betur, vegna eigin uppeldis frá árum áður hjá sínum eigin foreldrum. Telja einfaldlega að svona eigi þetta vera, sbr., almennt heimilisofbeldi.
Rekur nú minni til einhverrar umræðu fyrir einhverjum árum síðan um að þó klámvæðingin væri farin að hafa áhrif á börn og unglinga erlendis, þá væri það ekki keisið hér! Einhver sem hefur lesið færsluna ...íslenskur raunveruleiki í dag... ????? Æ rest mæ keis! Takk fyrir innlit og gott komment!!!