Thursday, February 18, 2010

Enn eitt dæmið um getuleysi í geðheilbrigðismálum.

Samkvæmt fréttum Stöðvar 2, hafa nágrannar konunnar margítrekað áhyggjur sínar vegna konunnar, sem á við geðsjúkdóm að stríða.
HVAÐ ER AÐ ÞEGAR EKKERT ER AÐ OG ALLT ER Í LAGI??????????
Heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin hafa verið að vinna að áætlun um búsetuúrræði fyrir nákvæmlega svona einstaklinga, án þess að nokkuð sé komið út úr því, nú einu ári eftir að vinnan fór af stað. Samkvæmt Helskinki yfirlýsingunni eiga notendur þjónustunnar (við geðsjúklingarnir) að koma að allri vinnu og stefnumótun í málaflokknum. Slagorðið er: Nothing about us without us - sem leggst út á íslensku Ekkert um okkur án okkar. Svar heilbrigðisráðherra við þessu var að ráða verkefnisstjóra sem er GEÐLÆKNIR til að finna réttu úrræðin. Og á meðan þessir blessuðu kerfiskallar og geðlæknar mjólka spenana, þá koma svona atvik upp, eins og þessi bruni á Hringbrautinni í nótt.
Ég hef mjög ákveðnar skoðanir á geðheilbrigðiskerfi Íslands, og svo það sé á hreinu, þá er það ekki að virka sem skyldi. Og getur aldrei, á meðan kerfið gengur út á að viðhalda valdabaráttu lækna og deildarstjóra. Ísland er langt á eftir nágrannaþjóðum okkar í geðheilbrigðismálum, og kemur til með að verða það áfram, á meðan ekki er gerð alger uppstokkun í þessu kerfi.

mbl.is Kona handtekin vegna gruns um íkveikju í nótt
Fyrst birt 19.2.2007 | 19:01

Athugasemdir

1 Smámynd: pirrhringur
það er eitthvað mikið að. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem álíka gerist....
pirrhringur, 20.2.2007 kl. 18:19

No comments:

Post a Comment