Thursday, February 18, 2010

"Já þessi vibbi er til en ekki mjög algengur."

Titillinn á þessari færslu er bein tilvitnun í "veffara". Mér blöskraði svo þessi yfirlýsing að ég þurfti að telja oft upp að hundrað áður en ég trúði því að hann væri að tala í alvöru.
Sonur minn, sá þeirra sem er þolandi, gekk heitur í hamsi um gólf, en hann róaði sig, áður en hann segði eitthvað í netheimum sem hann hefði kannski séð eftir.
Glöggir lesendur Moggans tóku sjálfsagt eftir því í gærkvöldi að Morgunblaðið í dag er undirlagt af umræðu um kynferðislegt ofbeldi, og kannski einkum og sér í lagi afleiðingar þess.
Væntanlega er blessaður Mogginn með þessa miklu umfjöllun af því að "þessi vibbi er til en ekki mjög algengur", er það ekki? Í fjölmiðlum hér á landi er nefnilega fjallað einstaklega mikið um alls kyns þjóðfélagsmein, sem eru alls ekki algeng - eða hvað?
Sannleikurinn er sá að þetta er - því miður - alltof algengt. Ég vildi gjarnan búa í því útópíska þjóðfélagi sem "veffari" telur sig búa í, að minnsta kosti samkvæmt þessu. Ég hvet alla lesendur mbl.is til að fjárfesta í blaði dagsins, séu þeir ekki áskrifendur, og lesa umfjöllun blaðsins um þennan málaflokk. Þörf lesning, og gefur almenningi kannski einhverja hugmynd um fastagesti heimila þolenda kynferðisofbeldis.
Sem betur fer er almenningur að verða sæmilega upplýstur um afleiðingar kynferðisofbeldis á börn, og birtingarmyndir afleiðinganna, en alltaf má gera betur. Þá er ég ekki að tala um tilefnislausar nornaveiðar, sem því miður eru enn þann dag í dag stundaðar af barnaverndaryfirvöldum. Hins vegar sé ég ekki að það breytist meðan pólitískar ráðningar ráða enn för þegar valið er í barnaverndarnefndir landsins. Þar virðist litlu sem engu máli skipta hvort fólk hefur einhverja reynslu eða menntun sem gerir það hæft til að fjalla um dýrmætustu mál þjóðarinnar - börnin og einkalíf fólks - og slíkt hið sama má segja um félagsráðgjafa sem starfa að barnaverndarmálum.
Hin sorglega staðreynd er sú, að þetta er afskaplega lítill hópur fólks, þar sem allir þekkja alla, og allir eiga hönk upp í bakið á hver öðrum, svo vinnubrögðin litast óneitanlega af yfirgengilegri hagsmunapólitík, en sorglega lítið af fagmennsku og mannlegum þáttum.  Þó má ekki gleyma því að þetta hefur verið að færast aðeins til betri vegar, en við erum enn langt í frá orðin það siðmenntuð þjóð að ráðningar og skipanir í störf í þessum málaflokki séu á faglegum grundvelli fyrst og fremst.



mbl.is Átröskun, hömluleysi og reiði
Fyrst birt 18.2.2007 | 14:39

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson
Mér finnst "klikkaða konan úr Hafnarfirði"koma hugmyndum sínum vel til skila.Kærar þakkir fyrir.
Kveðja
Kristján Pétursson, 19.2.2007 kl. 00:52

No comments:

Post a Comment