Friday, February 19, 2010

... af því að Inda bað svo fallega....

... þá þori ég ekki öðru en skaffa henni lesefni til að hafa af nóttina! Búin að vera að halda henni félagsskap á næturvöktunum, sem er ágætt, enda endalaust næði til að spjalla um heima og geima, og allt þar á milli. Förum um víðan völl, reyndar krullast ég alveg upp af pirringi við að slást við þetta lyklaborð - greinilega alltof dekruð af lappanum sáluga - þoli bara ekki svona PC lyklaborð! Finn enga takka, og endalausar prentvillur í gangi! Urrrrr!
Og Magga, nú fer að líða að því að ég komi og taki í lurginn á þér, fyrir að svíkja hana Indu svona svakalega! Þú bara VERÐUR að taka meira tillit til hennar!!!!! Þú mátt ekki láta okkur Fysið um hituna einar, við kiknum bara undan álaginu sko! Herða sig, systir Margrét!!!! Engar afsakanir teknar gildar!
Annars er ég búin að vera á bloggrúntinum, svona samhliða samskiptunum á næturvaktina, og hef nú rekist á eitt og annað áhugavert, og svo helling sem ég get svo vel samsamað mig við: Eins og einn góðan moggabloggara sem bloggar af ákefð um trúmál og biblíukenningar. Verð nú að segja að þetta er að sjálfsögðu meira og minna fyrir ofan minn skilning, enda er ég jú bara fávíst rifbein samkvæmt þeirri góðu bók, og því ekki von á að ég skilji mikið í svona djúpum pælingum. AUÐVITAÐ eiga samkynhneigðir ekki að búa við sömu hjúskaparlög og aðrir þegnar í landinu! Dööööhhhh, hvernig gat ég verið svona vitlaus að láta mér detta þessa vitleysu í hug???? (Alveg rétt, ég hef afsökun, þið munið - rifbeinið góða!) Og auðvitað á að hýða fólk á Lækjartorgi fyrir hórdóm! Og auðvitað hafa menn rétt á að berja þræla sína - sem á góðri nútíma-íslenzku heita eiginkonur - án þess að nokkur skipti sér af því!
Hvað er að þegar ekkert er að og allt er í lagi???? Hvernig dettur þessu blessaða rifbeini í hug að mannréttindi séu eitthvað sem hafa ber í huga? Sér í lagi eftir þessa dásamlegu Ólympíuleikaveislu - sem því miður lauk alltof fljótt! Hefðum sko getað verið með fastar áætlunarferðir fyrir ráðherra, maka, ráðuneytisstjóra, maka, og skúringakonur annan hvorn dag á kostnað skattborgara til að sýna stuðning okkar í verki við mannréttindabrotin í Kína! Engin ástæða til annars en að klappa Kínverjum á bakið og segj: Well done my friend! Keep up the good work! Við ætlum að verða eins og þið þegar við verðum stór!
Æ sorry, gleymdi að við erum stórasta land í heimi! Eigum við að missa okkur aðeins yfir málfari forsetafrúarinnar fyrst við erum að þessu á annað borð? Endilega hreint! Auðvitað argasta skömm og svívirða, að hún sýni viðleitni og tali íslensku, ekki komin með fullt vald á því ylhýra!!! Hvernig bara vogar hún sér??????  Hefur hún ALDREI heyrt talað um Linguaphone á íslensku???? Getur hún ekki bara talað ensku, sem allir skilja hvort eð er???? Í staðinn fyrir að nauðga okkar tandurhreinu tungu með svona orðskrípi? Og HVAÐAN fékk hún þessa hugmynd að það væri í lagi að hún stykki yfir einhverja bekki til að sýna fagnaðarlætin, eða tæki þátt í að klappa handboltaköppunum á bakið? Jalla, þetta jaðrar við guðlast og landráð! Sýnum henni hvar Davíð keypti ölið gott fólk! Svona lagað líðum við ekki! Það er í góðu lagi að fólk bruðli skattpeningunum, enda ekkert betra við þá að gera en borga undir rassinn á einhverjum ráðuneytispótintátum, en TALIÐ RÉTTA ÍSLENSKU FÍFLIN YKKAR!!!!!!!!!!! Svik og prettir, að ég tali nú ekki um ofbeldi og nauðganir, eru léttvægir glæpir á vogaskálunum gegn málfarsvillum!
Mikið skelfilega er ég fegin að bæði frumburðurinn og örverpið skuli tala lýtalausa íslensku! Jahérna hér, það er bara eins fallegt sko! Tel reyndar að við eigum yfir höfði okkar kæru fyrir landráð, fyrir að hafa ekki farið og fagnað strákunum OKKAR, við heimkomuna í dag; mér finnst bara að þeir hefðu mátt hafa ÓL miklu lengri til að geta bruðlað svolítið meira, og ýtt enn frekar undir mannréttindabrot, og auðvitað fordóma út í geðfatlaða! Enda eiga geðfatlaðir bara heima í búrum á einhverju guðsvoluðu skeri, þar sem enginn þarf að sjá þá! Segir sig sjálft er það ekki? Og það væri hægt að hafa samkynhneigða og trúlausa á sama stað! 
Las einmitt á blogginu hennar Höllu Rutar að þar kom einn snillingurinn með góðan punkt í umræðunni um þjónustu við fatlaða. TIL HVERS EIGA SKATTBORGARAR AÐ BORGA ÞESSA ÞJÓNUSTU? Það er nú ekki eins og þetta verði einhverntíma nýtir þjóðfélagsþegnar, sem leggja eitthvað af mörkum, eða borga skatta og skyldur! Góð spurning Siggi! Engin ástæða til að virða mannréttindi hér, frekar en í Kína, er það?????
Skyldi þetta vera íslenskur veruleiki í fílabeinshöllunum í borginni? Ja, kona spyr sig.....


Fyrst birt 28.8.2008 | 03:43 

Athugasemdir

1 identicon
Hverskonar spurning er þetta hjá Sigga?
Er einhver siðblinda í gangi?
En hjartans þakkir fyrir góðan pistil og sérstaklega þakka ég fyrir skammirnar hennar Margrétar :)
Knús ...
Eigum áfram notalega stund - klukkan er bara 3:55 :)
Inda
Inda (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 03:56
2 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir
 Gat nú ekki stillt mig og stal þessu kommenti frá mannvitsbrekkunni Sigga af síðunni hennar Höllu Rutar! Þarna er lausnin komin gott fólk!!!!
Málið er að minn "hópur" gerir ekki greinarmun á mjög fatlaðri manneskju (eða veikri) og mannapa, þeas. við teljum að ef manneskjan getur ekki skapað sér réttindi eigi hún þau ekki skilið. ("Might makes right") Þannig, ef svoleiðis manneskja er okkur til einhverskonar ama (t.d. taka skatt sem gæti farið í að hjálpa mér eða mínum) þá er ekki gerður greinarmunur á því og ef hundur væri að gera það. (Hundur ræðst á menn og skattpeningur fer í að gera við sárið).
Reiknað með því að þínar tölur séu réttar, ég dreg það ekki í efa, þá kemur það mér ekki á óvart, þetta gæti já vel verið ósamgjarnt, en aftur, þarfir fjöldanns > þarfir minnihlutanns, ef þetta fólk ætlar ekki að borga skatt, tekur það afleiðingunum (Máttur skapar rétt).
Mannréttindi eru ekkert nema óskrifað samkomulag frummanna um að drepa ekki hvorn annann og vinna saman gegn hinum veiku sem einhver tók of alvarlega og fór að vernda hina veiku. Ergo, mannréttindi eru fyrir þá veiku og huglausu.
Geturðu gefið mér eina ástæðu fyrir því að ég ætti að draga hag einhvers annars, sem getur ekki heimtað það af mér með valdi, yfir minn hag eða barna minna?
Ég hef aldrei náð þessu með fötluð börn, ef ég ætti svoleiðis barn myndi ég vilja skipta því út, rétt eisn og Spartverjarnir, ég myndi ekki ala það upp nema ég væri orðinn ófrjór og þetta væri mitt eina barn, tekur minni orku og skilar meiri árangri að byrja bara upp á nýtt og skella öðru í ofninn. Þetta er svona eins og að reyna að gera við köku búna til úr skemmdum eggjum, óskynsamlegt. (Sú forsenda er gefin að markmið lífsins sé að dreifa erfðaefni sínu).
Siggi (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 22:27
Berglind Nanna Ólínudóttir, 28.8.2008 kl. 03:56
3 identicon
Mér BLÖSKRAÐI þetta comment!
Er það svo að svona ignorant fólk eins og Siggi fær að vaða uppi með sínar heimskulegar, særandi og niðrandi skoðanir hér á Mogganum?
Guð sé lof að þessi mannvitsbrekka skuli ekki hafa lent í þeim harmleik að eignast fatlað barn - sennilega hefði það endað í ruslatunnu á Frakkarstígnum.
Held að mannvitsbrekkann ætti að láta klippa á slöngurar hjá sér - það er ekki hægt að bjóða saklausu mannsbarni, fötluðu eða heilbrigðu að alast upp af greindarskertum föður.
Fjölfatlaði fóstursonur minn var velkomin, bæði í hjarta mínu og heimili ....sennilega er ég skýr því barnið sem ekki gat tjáð sig né hreyft gaf mér visku og kraft ....
Siggi ...þú ert asni. . . face it!
Inda (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 04:08
4 Smámynd: Halla Rut
Skemmtileg lesning þetta hjá þér. Þú ert nú örugglega sofandi núna en sendi þér upprífandi kveðjur inn í daginn þegar þú skríður á fætur.
Halla Rut , 28.8.2008 kl. 08:09
5 Smámynd: Jac G. Norðquist
Frábær og fræðandi færsla Berglind. Ég er rétt um það bil að verða faðir í 3 sinn.... og við hjónin vorum innt eftir því á fyrstu vikum meðgöngunnar, hvort fóstrið ætti ekki að athugast með tilliti til Downs syndromsins.... við horfðum snöggt á hvort annað og sögðum bæði "Nei" ! Það vakti mikla undrun hjá lækninum og átti hann í erfiðleikum með að skilja að við tækjum þessu barni með virktum þrátt fyrir mögulega fötlun. Sama hvað verður, þetta verður litla krílið okkar og við munum annast það og elska af bestu getu. Um hann Sigga hér að ofan vil ég ekkert ræða..... Mamma ól mig betur upp en það ;)
Jac Norðquist
Jac G. Norðquist, 28.8.2008 kl. 11:11
6 Smámynd: Rannveig H
Flott færsla hjá þer,og mér líkar þessi húmor þinn svo vel.
Rannveig H, 28.8.2008 kl. 11:23
7 Smámynd: Ragnheiður
Guð !
ég vona að ég sé að lesa vitlaust þetta komment °sigga°- mér finnst hann leggja til nánast gamaldags útburð á fötluðum börnum....
ég ætla að fara af síðunni og vona að ég sé bara að misskilja herfilega herfilega og herfilega
Ragnheiður , 28.8.2008 kl. 12:10
8 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir
Bara kvöldgalsi í minni :-)
Siggi dæmir sig sjálfur
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 28.8.2008 kl. 17:54

No comments:

Post a Comment