Thursday, February 18, 2010

Engar fréttir eru góðar fréttir eða hvað?

Ég geri svo mikið af því að skamma aðra fyrir bloggleti, en er ekkert betri sjálf! Best að bæta aðeins úr því!
Lítið að frétta úr Hafnarfirðinum í sjálfu sér, barnið að byrja í skólanum, sem betur fer. Þá fer að verða minna um fótspor í loftinu! Er að vísu nett taugaveikluð yfir hvað skóladótið kostar, en þetta er nú þessi frábæra ókeypis menntun sem við búum við á Fróni! Heyrði í fréttum úttekt á kostnaði við skólabyrjun, og það hleypur á fleiri þúsundum, ætli ég geti ekki reiknað með að þetta kosti mig um tíu þúsund fyrir guttann.  Frekar fyndið að eftir því sem barnið eldist, þá aukast útgjöldin um leið og barnabæturnar lækka. Skrýtin vísindi þar á ferð. Rak mig líka á það um daginn, að barnabætur eru greiddar ári eftir á, og samkvæmt því ætti ég að fá barnabætur í ár fyrir þennan 18 ára fyrir síðasta ár, ekki satt? Nei það er ekki svoleiðis! Í raun og sannleika fær fólk bara barnabætur í 17 ár með hverju barni! Hvað skyldi umboðsmaður barna hafa um það að segja.
 Annars er allt að fara í gang í geðveikinni aftur, erum að undirbúa mjög spennandi námskeið núna í haust, en meira um það seinna. Verður allavega mikið að gera hjá mér á næstu vikum, sem er bara gott. Vildi óska að gengi jafnvel að fá borgað fyrir vinnuna í sumar. Alltaf gott að hafa nóg að gera, en væri enn betra að fá greitt fyrir það líka!
En semsagt - engar fréttir eru góðar fréttir, eða hvað? Kona spyr sig.......

Fyrst birt 21.8.2007 | 20:50

Athugasemdir

1 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir
Ég var einmitt að hugsa á sömu nótum með skólabókakostnaðinn í grunnskólunum. hvers vegna í ósköpunum er þetta ekki frítt. 10 þúsund á barn er bara of mikið fyrir allt of marga. Þá á eftir að fata börnin og ekki er það ódýrt.
Við montum okkur af ókeypis skólagöngu fyrir yngri börnin en svo er hún bara ekkert ókeypis langt því frá ARG.......
Er að fara með barnabarnið í bókakaup á morgun og hlakka ekki til......
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:14
2 identicon
Já, þetta er ekki ókeypis ....ég slapp með 18 þúsund fyrir báða gauranna.
Kveðja Inda
Inda (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 22:00
3 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir
Dúllan slapp með rúmlega 7000 kr. og þetta var ekki eins leiðinlegt og mér minnti. Ekki mjög langar biðraðir en þar sem allt varð að vera í ákveðnum litum og stærðum þurftum við nú samt að fara í þrjár verslanir til að fylla staðalinn.
Mæli með að foreldrum verði sleppt við þetta búðaráp með tilheyrandi umferð og þetta keypt í magnpakkningum og frekar sett á efnisgjald þar til menntamálayfirvöld eru til í að borga þetta.
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 24.8.2007 kl. 11:01
4 Smámynd: Agný
Það er greiinilegt að þið eruð alltof ungar..ja..eða ég of gömul..þó að aldur sé svo sem afstæður..
Það var þannig þegar ég var í hinu svo kallaða skyldunámi..þá fengu allir þær skruddur sem að maðurátti að læra af...FRÍAR""""".....
Nei ...ekki aldeilis að dæmið sé þannig í dag!!!!!
Viðkomandi fær x bækur sem að hann/hún á að skila eftir mjög stuttan tíma.....Hvað um það ..........hvaðan sem upplýsingarnar koma.....kaupum við ekkert hrátt..förum eftir tilfinningunni, hggjuvitibu og kjarkinu og þornum.......Því miður virðast flestir íslendingar vera búnir ap tapa þessu..:-(
Agný
Agný, 6.9.2007 kl. 04:56
5 identicon
Jæja....á ekkert að fara að blogga stelpa?!
Addý (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 17:55

No comments:

Post a Comment