Friday, February 19, 2010

... guði sé lof fyrir geðveikina...

... verður mér stundum að orði, og meina það innilega. Hef nú komist að því undanfarið, að þetta eru orð að sönnu, og nú hef ég fengið það staðfest. Undanfarið hefur farið mikinn fréttin af Hemma Gunn, sem kvartar undan því að mega ekki eiga fleiri en 5000 - segi og skrifa FIMMÞÚSUND - vini á fésbókinni, og ég hristi hausinn, og furða mig á því hvernig sé hægt að eiga FIMMÞÚSUND vini? Nú þarf ég ekki að velta þessu frekar fyrir mér, því það er alveg sama hvað ég reyni, ég get ALDREI skilið þetta, frekar en ýmislegt annað, því ÉG ER GEÐVEIK og því ekki á mínu færi að skilja "VENJULEGT" fólk.
Ég til dæmis skil heldur ekki tvískinnung í fari fólks, hef aldrei gert, og nú er það ljóst, ég mun ALDREI skilja það, vegna þess að ég er geðveik.
Það er allavega það eina sem skilur mig frá þessu venjulega fólki, að ég hef greinst með geðsjúkdóm, þau ekki, og því hlýtur geðveikin að vera valdur að skilningsleysi mínu.
Ég á fullt í fangi með að fylgjast með þeim örfáu vinum sem ég á á fésbókinni. Kannski vegna þess að það eru bara 24 tímar í mínum sólarhring, veit ekki með ykkar. Og á þessum 24 tímum þarf ég að nota 6 - 8 í svefn, aðra 6 -8 í vinnu (svona að jafnaði), þá eru bara 8 - 12 tímar eftir. Af þeim saxast duglega í ferðir fram og tilbaka þangað sem ég þarf að komast hverju sinni, dagleg þrif, dagleg heimilisverk (hef reyndar verið afskaplega löt við þau undanfarna daga) og svo þarf maður aðeins að nota af þeim í tómstundirnar. Þá eru nú ekki eftir margir tímar til að verja á fésbókinni, er það?
Ég hef heldur ekki tíma - eða vilja og löngun - í að eyða löngum stundum á hverjum degi í að baknaga fólk, eða rakka það niður fyrir hvernig það er úr garði gert, og snúa mér svo að viðkomandi og brosa mínu ljúfasta, og láta sem ekkert hafi í skorist. Allajafna segi ég nú fólki hreint út ef mér mislíkar eitthvað. Alveg eins og ég hef gert við barnaverndarstarfsfólk gegnum tíðina. Því það er einu sinni þannig, að enginn er yfir gagnrýni hafinn, og enginn er svo veikur, klikkaður, bilaður, geðveikur, skrýtinn eða snar, að hann megi ekki hafa sína skoðun á, og tjá hana.
Því ætla ég að endurtaka að hluta það sem ég hef sagt hér áður í færslu, en til að særa örugglega ENGAN, þá segi ég það svona:
SUMIR BARNAVERNDARSTARFSMENN HAFA HAFRAGRAUT Í HEILASTAÐ, OG ERU ENGAN VEGINN STARFI SÍNU VAXNIR.
Bara þannig að það sé á hreinu. Mín skoðun og ég stend við hana hvar sem er og við hvern sem er.
En ég held að þarna sé geðveikin líka að tálma mér sýn. Því ég fæ ENGAN VEGINN skilið aðgerðir barnaverndaryfirvalda í ákveðnum málum, eða endalausa áráttu þeirra til að setja leppana fyrir augun og neita staðfastlega að horfast í augu við sannleikann og staðreyndir.
Ég er reyndar að skrifa langa og ítarlega færslu um þau mál öll, þar sem ekkert verður dregið undan, en hún er enn ekki alveg tilbúin, einkum og sér í lagi vegna þess að ákveðnir barnaverndarstarfsmenn kunna greinilega ekki á ljósritunarvélina á skrifstofunni, eða að brjóta saman blöð og setja í umslag. 
Kannski þeir hafi farið í framheilaskurðaðgerð á heilablaði og fengið hafragrautinn þannig? Eða kannski ég hafi farið í framheilaskurðaðgerð á heilablaði, án þess að hafa minnsta grun um það, og fengið grautarslettu í stað gáfnanna? Ja, kona spyr sig...

P.S. Fyrir forvitna lesendur, upplýsist hér með að pabbahelgin hjá Hákoni bekkjarbangsa gekk vonum framar, og þurfti mikið sjaldnar að áminna það sett foreldra, heldur en hitt, og Hákon var voða glaður þegar hann kom í bekkinn sinn aftur á mánudaginn. Finnst hins vegar góð hugmynd að allir bekkir og allar fjölskyldur eigi eitt stykki Hákon á vísum stað, svona til að stemma stigu við fúkyrðaflauminum sem óneitanlega grípur fólk í miðri kreppunni.

Fyrst birt 6.2.2009 | 02:31

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Sigurðarson
þú ert snargeðveik kona... vissirðu það :)
Ég er hjartanlega sammála þér mín kæra hvað blessaða barnaverndina varðar. Þar vantar áþreifanlega innra eftirlit þar sem foreldrar geta komið sínum málum á framfæri eins og er í Bandaríkjunum í mörgum fylkjum. Ef kvartanir eru alvarlegar frá foreldrum í garð barnaverndaryfirvalda fer í gang rannsókn, og ef kvartanir reynast á rökum reistar sæta menn ábyrgð. Svo einfalt er það.
Varðandi stórvin minn hann Hemma Gunn... þá stórvorkenni ég honum að fá ekki að eignast nema 27 vini til viðbótar. Þó hann kannski þekki ekki alla þessa 4793 aðila sem eru komnir á vinalistan hans, þá lítur hann á FaceBook sem samskiptamöguleika, rétt eins og ég. Þarna eru margir á listanum hans sem annað hvort vilja kynnast honum eða finna þarna leið til að geta haft samband við hann bréfleiðis þegar mikið liggur við.
Eins og þú veist, þá er minn vinalisti kominn yfir 860, en munurinn á mér og Hemma er að þetta eru nánast allt vinir mínir. Restin er fólk sem ég þekki... suma mikið og aðra lítið... en nokkrir eru þarna sem eru tónlistarmenn sem hafa skellt sér á listann minn og haft af mér gagn sem dæmi.
Ég fór yfir listann minn í síðustu viku og taldi þar 32 aðila sem ég gat ekki skilgreint nákvæmlega. Það þýðir um 830 sem ég gat skilgreint... og hjálpi mér Heimdallur... Ekki grunaði mig að ég þekkti svona mikið af fólki, því það hrúgast enn inn á listann hjá mér. Eitthvað er af fyrirtækjum, hljómsveitum og mótorhjólaklúbbum þarna og er það einnig mjög sniðug leið til að maður geti fylgst með útsölum, skemmtunum og þessháttar.
Svo niðurstaðan er sú hjá mér að við Hemmi erum bara svo sniðugir... sjáðu til, að við lítum á Facebook að hluta til afþreygingar og skemmtunar, vinnu og hagkvæmni, en ekki einungis til persónulegra nota á milli góðvina.
Aðrir gera það og þekki ég nokkra. Þeir eru sem dæmi með læstan prófíl og lái ég þeim það ekki.
Svo er nú það.
Baldur Sigurðarson, 6.2.2009 kl. 10:33
2 Smámynd: Baldvin Jónsson
Hemmi Gunn minnir mig bara á einn gamlan góðan frasa: "Men, I wish I had his problems"
Baldvin Jónsson, 9.2.2009 kl. 01:20
3 identicon
Stelpuskottið mitt....þetta er nú bara fjandi góð færsla hjá þér!
Ætla nú ekki mikið að tjá mig um þessi barnaverndarmál....ég er að hugsa um að leyfa mér að sofa í nótt og ég verð svo örg þegar ég fer að tala um þetta að það borgar sig bara ekki fyrir mig.
Ætla að láta nægja að segja bara....of mörg dæmi af "mistökum" hljóta að kalla á endurskoðun!
Hvað varðar Hemma Gunn og vini....gott mál, ég hef ekki verið svo mikið á ferðinni að ég komist upp í helming Ofurs-vina en ég er næstum viss um að ég myndi ekki vilja segja nei við vinarboði einhverra kunningja sem vilja hafa mig á listanum hjá sér.
Hitt er svo annað mál að vinir eru ekki bara vinir....og hvenær þekkir maður einhvern nógu vel til að geta sagt með sanni að hann sé vinur manns?!
Skrifa meira síðar....satt best að segja þá fékk ég dálítið dásamlegt sent rétt í þessu sem setti mig alveg út af laginu. Þetta alvarlega málefni hjá þér verðskuldar meiri eftirtekt og ég bara get ekki einbeitt mér í hláturskasti nægjanlega vel úr því sem komið er!
Sendi þér þetta á emaili hon....settu þig í stellingar, þú urlast!!!!
Hringi svo í þig um hádegið darling!
Luvya!
Fysið (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 05:22
4 identicon
Meira blogg....meira blogg!
Luvya grlfrd!
Fysið (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 03:08

No comments:

Post a Comment