Mér barst í dag tölvupóstur frá starfsmanni á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss. Fréttirnar voru vægast sagt slæmar. Nú stendur fyrir dyrum lokun á iðjuþjálfun á geðsviði þann fyrsta maí n.k. Læt hér fylgja innihald tölvupóstsins:
Nú lítur allt út fyrir að loka eigi Iðjuþjálfun geðdeildar LSH v/ Hringbraut.
Þó svo það sé ekki orðið opinbert þá er það á allra (flestra) vitorði hér að loka eigi 1. maí nk.
Í ljósi alvarleika þess ef þetta verður niðurstaðan þá biðla ég til ykkar notendafélaga, aðstandendafélaga og allra sem láta sér annt um meðferðarúrræði geðsjúkra að sýna samstöðu.
Endilega hafið samband við mig og/eða ykkar á milli og komið ykkur saman um fundartíma þar sem farið yrði yfir hvað skuli gera.
Ég bendi á að Alþingi fer í frí 15. mars nk. en í ljósi þess að það eru kosningar á þessu ári þá erum við, hvert fyrir sig og ég tala nú ekki um öll saman, gífurlega mikilvægt ATKVÆÐI í kassann.
Sýnum mátt okkar og stöndum saman.
Huggulegt ekki satt? Frá því sjúkrahúsin voru sameinuð, hefur þjónusta á geðsviði verið á hraðri niðurleið, og nú er svo komið að síðasti þátturinn fyrir utan að hafa fólk inniliggjandi í aðgerðarleysi allan daginn, er að renna sitt skeið á enda. Fyrst var sjúkraþjálfunin tekin út, þrátt fyrir ítrekaðar óskir, og vísbendingar um að geðsjúkir þurfi oft á tíðum sárlega á slíkri þjálfun að halda. Listmeðferð hefur ekki verið til staðar, a.m.k. ekki síðan ég kynntist starfi geðdeilda, og nú er komið að iðjuþjálfuninni! Í iðjuþjálfun hafa einstaklingar sem ekki hafa verið færir um að valda hlutverki í þjóðfélaginu um langa hríð, öðlast færni á nýjan leik, í það minnsta til að geta séð um sig sjálfir að einhverju eða öllu leyti, og upp í að verða aftur "nýtir þjóðfélagsþegnar" sem borga skatta og skyldur og eru ekki byrði á ykkur hinum.
Iðjuþjálfun hefur ekki einungis þjónustað fólk sem er inniliggjandi á geðdeildum, heldur hafa einstaklingar sótt iðjuþjálfun í geðdeildarbygginguna ýmist meðan það er í dagdeildar- eða göngudeildarstatus, eða eftir útskrift af geðdeild.
En sjálfsagt þykir þetta þjónusta sem kostar of mikið, og skilar of litlu. Það eru í það minnsta einu ástæðurnar sem mér þykir vera einhver skynsemi í. En hver þarna úti er tilbúinn til að leggja mat á verðmæti iðju, í hvaða formi sem hún birtist? Hversu mikils virði er það í krónum og aurum talið, að geta lagað kaffi? Eða bakað brauð? Eða vaskað upp? Eða unnið á tölvu? Eða sauma púða?
Merkileg þróun, á sama tíma og lyfjagjöf hefur aldrei verið meiri.
Nú skora ég á heilbrigðisráðherra að gera eitthvað róttækt í málunum. Þetta er algerlega ólíðandi!
Ef þið hafið áhuga á að taka þátt í áætluðum mótmælum, endilega hafið samband við undirritaða!
Fyrst birt 21.2.2007 | 20:56
Athugasemdir