Friday, February 19, 2010

Af reiði...

... og öðrum munaði, fæðist þessi færsla.
Sem óvirkur alki má ég vita af áralangri reynslu að reiði er mér munaður sem ég hef ekki efni á. Sem geðsjúklingur hef ég komist að því að reiði kemur oftar en ekki af stað maníukasti. Baðherbergið mitt lítur sko miklu betur út eftir síðasta reiðikast, höfum það alveg á hreinu! Veit samt ekki hvort sálartetrið hafði gott af þessu kasti, sem er enn að hafa áhrif. Þess vegna sit ég fyrir framan tölvuna klukkan að verða fjögur að morgni og blogga í stað þess að vera niðursokkin í einhvern prinsessuleik í draumalandinu! En hey .... flísarnar á baðherberginu líta miklu betur út eftir umferð af gamla góða Mjallarbóninu! Og ég er alltaf að tala um að horfa á björtu hliðarnar er það ekki? Baðherbergið hefur ekki verið svona hreint síðan í þarsíðustu maníu - að minnsta kosti!!!!
Ástæðan fyrir reiðikastinu verður ekki tíunduð hér - læt mér nægja að segja í eitt skipti fyrir öll að ég hef gefist upp á jeppanum ógurlega, og lögreglan skyldi betur halda sig fjarri mér héðan í frá! Annars verð ég hreinlega ekki ábyrg gjörða minna!!!! Hitt er svo annað mál, að það er dásemdin ein að sjá mig í maníukasti. Ég verð svo DUGLEG!!!! Meira að segja er ég að gera eitthvað annað meðan ég sit á dollunni að kasta af mér vatni! Aldrei dauð stund! Helst að gera fimm hluti í einu ef ég mögulega kemst upp með það! Skola baðið, pissa, brjóta saman handklæði og skipta um klósettrúllu - allt í einni andrá! Sjáiði þetta ekki fyrir ykkur? Kannski að tala í símann í leiðinni? Ekki vandamál á þessum bæ í maníu sko! Er hins vegar svo athyglisbrestuð þegar ég er ekki uppi að ég get ekki talað í símann og verið að gera eitthvað annað á meðan. Skondið! Og skýrir kannski á margan hátt fyrir þeim sem ekki skilja maníu, af hverju við maníusjúklingarnir viljum helst vera uppi! Við erum svo helvíti afkastamikil og frjó!
Samt ekki gott þegar maður á að vera sofnaður og liggur uppí að rembast við að slaka á og sofna, og á meðan er hausinn á milljón og sjö við að raða verkefnum á morgundaginn - sem by the way á að byrja klukkan sjö þrjátíuogeitt - ákveða hvaða tölvupóstum verði að svara, hverja maður verði að hringja í og á hvaða fundi maður verður að mæta, og hey semjum bloggfærslu í hausnum á okkur fyrst við erum að þessu á annað borð!
Ég verð hins vegar ekki eftirsóknaverð manneskja til að þekkja eða umgangast í þessum köstum. Ég gleymi að taka tillit til tilfinninga annarra, vegna þess að ég höndla ekki mínar eigin, og ef ég er slæm, eins og síðustu daga, vil ég helst ekki svara símanum eða hitta neinn; hvað þá að ég þoli að einhver taki utan um mig eða kyssi mig og kjassi. Get sennilega einna best útskýrt þetta á þann hátt að það er eins og ég sé þakin í kaktusnálum, og þoli ekki tilfinningalega snertingu. Ekki gott ástand!
Á hinn bóginn á ég ofsalega góða vini, sem eru farnir að þekkja mig ansi vel, og vita hvenær ég þarf að fá að vera geðveik í friði, og hvenær á að pikka í mig og pota, og það hjálpar helling að vita að það er fólk þarna úti sem veit og skilur og þykir samt vænt um mig! Og það eina sem ég get sagt er: TAKK! Þarf ekkert að nefna nein nöfn hér, þeir vita sem eiga að vita, og þekkja sem eiga að þekkja.
Veit líka að það sem kom reiðinni af stað er eitthvað sem kemur til með að sitja lengi lengi í mér, og er stór biti að kyngja, en ég er þjóðþekkt fyrir að kyngja stórum bitum, svo þessi ætti ekki að standa neitt sérstaklega í mér, þó það geti tekið mig tíma að melta hann!
Næstu dagar og vikur fara í endurskipulagningu á komandi mánuðum, sem er kannski bara gott. Það kemur í ljós þó síðar verði! Spurning um að fara kannski að leggjast á koddann aftur og sjá hvort ég sofni? Ja, kona spyr sig......

Fyrst birt 16.4.2008 | 04:06

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir
Hólmdís Hjartardóttir, 16.4.2008 kl. 04:12
2 identicon
Pikk og pot og vertu góð
Syskrús og helling af því 
Svo er ídeal að nota hundasjampó á bakaraofninn....eða eikkað 
Addý sys (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 20:48
3 Smámynd: Rannveig H
Þú ert sko bara flott,og svo djö,,,,meðvituð það finnst mér langflottast.
Rannveig H, 21.4.2008 kl. 09:55

No comments:

Post a Comment