Við getum margt lært af nágrönnum okkar í Bandaríkjunum, hvort heldur sem það eru meiriháttar vegaframkvæmdir, sem valda litlum sem engum töfum, eða refsirammi þegar kemur að svívirðilegustu brotum sem mannskepnan getur framið. Mér virðist sem hér sé enn eitt atriðið sem við getum tekið okkur til fyrirmyndar! Þvílík snilldarlausn. Hægt væri að koma svona hjólhýsabyggð fyrir vestur í Jökulfjörðum, þar sem engin hætta er á að börn séu á vappi, hægt væri að girða varginn af, og jafnvel selja ferðamönnum aðgang í skoðanaferðir, þar sem þeim væri sérstaklega kynnt stórkostleg vistunaraðferð fyrir glæpamenn sem virðast aldrei sjá villur síns vegar, nema rétt á meðan þeir sitja inni hjá sálfræðingi fangelsismálastofnunar, og lofa bót og betrun, og lýsa fjálglega iðrun sinni.
Legg til að sá fyrsti sem verði vistaður þarna sé Sveinn Ríkarðsson, Húsvíkingur, búsettur í Hafnarfirði, margdæmdur níðingur, sem virðist nú síðast hafa látið til skarar skríða í Grafarvoginum.
Seljum frekar veiðileyfi á þessa menn, í stað þess að gefa þeim veiðileyfi á börnin okkar!
Legg til að sá fyrsti sem verði vistaður þarna sé Sveinn Ríkarðsson, Húsvíkingur, búsettur í Hafnarfirði, margdæmdur níðingur, sem virðist nú síðast hafa látið til skarar skríða í Grafarvoginum.
Seljum frekar veiðileyfi á þessa menn, í stað þess að gefa þeim veiðileyfi á börnin okkar!
| Heimilislausir kynferðisbrotamenn hafðir í hjólhýsum | ||||||||

Fyrst birt 16.2.2007 | 16:02
Athugasemdir
Þótt ég hafi litla sem enga samúð með þessum mönnum þá vegna trúar minnar á manninum þá vil ég vona að einhverjum af þessum mönnum sé viðbjargandi og nokkrar rannsóknir sýna það, en hinir eigi frekar heima á bak við lás og slá en útí óbyggðum.
Já þessi vibbi er til en ekki mjög algengur. Þeir sem eru svona leiða af sér mikil vandamál og ofbeldi. Svo er allsk stigsmunur á hversu alvarleg þessi brot eru og Bandaríkjamenn taka harkalega á öllu svona eins og sést með þennan Aaron frá Texas. Svo á einn bóginn vitum við að það þarf að taka á þessu með festu, á hinn bóginn vitum við að þegar dómskerfið fer að sýna meiri festu, þá vilja saklausir verða teknir fyrir af kerfinu. Svo ef manns eigið barn lenti í svona einstakling þá er já hugmyndin með haglarann freistandi.
En svona raunhæft séð eru úrræðin m.a. að lengja fangelsisdóma, koma lögunum yfir á viðunnandi form og vinna í meðferðarlausnum.