Friday, February 19, 2010

...enn eru berlendingar að...

... og töluvert iðnir við kolann eins og sjá má HÉR. Æ hvað ég er nú þakklát fyrir að villast ekki þarna inn, nema þegar mér er bent á sleggjudómana um mig. Og þá er ég eins og púkinn á fjósbitanum, og hef endalaust gaman af! En þetta skýrir allavega umferðina hér inn síðasta sólarhringinn.
Skyldi þessi umferð halda áfram? Ja, kona spyr sig...

Fyrst birt 28.9.2008 | 02:38

Athugasemdir

1 identicon
Ég las þessa umræðu og mér blöskrar algjörlega!
Fyrir hafði ég ekki mikið álit á þessum spjallþræði en nú er ég alveg harðákveðin í því að þarna þrífst lágkúran best!
Venjulega er ég ekki að stressa mig yfir svona hlutum en þegar fólk heldur því fram að þú ljúgir,farir illa með börnin þín,nennir ekki að hugsa um börnin þín, sért hyski og svo framveigis án þess að þekkja þig eða þín mál á nokkurn hátt þá verð ég bæði reið og sorgmædd!
Og þið berlendingar sem þetta lesið: Mér er ansk..... sama þó þið teljið mig til JÁ-fólksins hennar Berglindar og spyrjið ykkur að því hvort það sé mikið um svona fólk eins og mig sem hljóti bara að vera stórundarlegt hyski afþví að ég er þessi JÁ-manneskja!
ÞAÐ SEGIR ALLT UM YKKUR....EKKI MIG, ÞAR SEM ÉG VEIT UM HVAÐ ÉG ER AÐ TALA EN EKKI ÞIÐ!!!!
Vona svo sannarlega að þetta hyski kunni að skammast sín....
Berglind mín....haltu áfram þínu góða starfi, þó það kosti arg og garg sem fer bersýnilega í taugarnar á fólki!
kv.,
Fysið!
Fysið (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 07:36
2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir
Ömurleg lesning (þó ég læsi bara brot).  Það er ekki mikið hugrekki falið í því að rægja fólk undir dulnefni.
Þetta er það sorglega við netið.
Gó görl.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2008 kl. 08:48
3 Smámynd: Rannveig H
Berglind! Ef þetta hyski kynni að skammast sín þá myndi það ekki skrifa svona, seigi eins og Jenný las bara brot af þessu rugli. Allir sem einhvað þekkja til þín eru í þinum jákór,eðlilega því það veit hvað þú stendur fyrir. Ef ég hef ekki fengið inni í þessum jákór Berglind mín þá sæki ég um hér með.
Rannveig H, 28.9.2008 kl. 17:41
4 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir
Takk fyrir þetta stelpur mínar, alltaf gott að sjá að ég sé ekki ein um það að finnast hleypidómar og grjótkast undir dulnefni vera lítið smart!
Rannveig, varstu ekki búin að fá úthlutað félaganúmeri í jákórnum ógurlega? Var að fletta í gögnum, og sé ekki betur en þú hafir fengið jákórsnúmerið 14!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 28.9.2008 kl. 19:46
5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir
Knús á þig elskulegust og góða nóttina
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.9.2008 kl. 21:25
6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir
Velkomin í minn bloggvinahóp. Þú átt greinilega á brattann að sækja og mér finnst þú standa þig eins og hetja.
Helga Magnúsdóttir, 28.9.2008 kl. 23:16
7 Smámynd: Gísli Sigurður
Úff elsku Berglind mín, núna varð ég að pústa svolítið (á hinum þræðinum).
Ég var kominn með tár í augun af reiði þegar ég las restina.
Og þá þurfti ég að pústa aðeins.
Þú getur gleðst yfir því að sá hluti þessara fábjána sem geta ekki skrifað undir nafni sem eiga börn, eiga alveg 100% ekki eftir að kynnast börnunum sínum og vinum þeirra eins vel og þú gerir við þín og þinna.
Það að fá að vera vinur þinn Berglind mín, og geta komið til þín óboðinn, og finna hlýjustu gestrisni sem á þessu landi er að finna, er algjör heiður, og ég þakka fyrir mig. Fæ mér kaffibolla með þér á morgun ef þú verður við.
Gísli Sigurður, 29.9.2008 kl. 03:02
8 Smámynd: Haraldur Davíðsson
Jamm vinkona, alltaf finnur maður mannkynslausnarana nafnlausa.....
.....taktu ekki mark á svona ræflum sem ekki þora að standa með orðum sínum, marktæk umræða fer ekki fram í myrkum afkimum netsins, það sem ekki þolir ljósið gerir það af ástæðu....
....vertu ótrauð og vittu til, sá hlær best sem síðast hlær.
Haraldur Davíðsson, 29.9.2008 kl. 13:15
9 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir
Takk þið öll fyrir falleg orð, bloggvináttu, jákórs-meðvirkni og ég veit ekki hvað!
Ætla nú samt að segja það hér, að batnandi fólki ER best að lifa! Gaman að segja frá því að ég fékk óvænt símtal áðan, þar var á ferð kona sem sagðist hafa skrifað eitthvað ljótt í minn garð í berlendi, og baðst hún innilegrar afsökunar. Hún benti líka á það að það sem maður skrifar og setur á vefinn, getur haft særandi og ófyrirsjáanlegar afleiðingar, og óskaði okkur mæðginum alls hins besta. Og í þeim anda ætla ég líka að biðjast afsökunar hafi ég sært einhvern með skrifum mínum hér. Ég veit vel að það er fullt af fólki að störfum í barnaverndargeiranum sem er að vinna vinnuna sína og gerir það vel. Oft miklu meira en vel. Og ég hef alveg orðið vitni að þeim vinnubrögðum. Þau eru hins vegar allt of sjaldgæf í málaflokki þar sem allt Á að vera í lagi ALLTAF.
En ég ætla líka að segja það hér, að ég var - og er - hund-ösku-reið yfir vinnubrögðum í þessu ákveðna máli, og hef ekki sagt mitt síðasta um það, bara svo það sé á hreinu.
Og þeir vita það sem til mín þekkja, að það þarf æði mikið að ganga á til að ég verði svona reið. En þegar ég reiðist, þá reiðist ég líka svo um munar.  Ekki að það réttlæti skítkast og sleggjudóma af minni hálfu. Síður en svo. Bara svo það sé á hreinu. Og með það er ég farin á enn einn fundinn með barnavernd, LOFA að vera ofsalega stillt og prúð, og yfirmáta kurteis, eins og ég var alin upp við að vera. Enda eins fallegt þar sem gamla settið fer með mér.  
(Note to self: Ekkert arg og garg, eða lemja hnefa í borðið - SAMA HVAÐ GENGUR Á!!!!)
Berglind Nanna Ólínudóttir, 29.9.2008 kl. 13:41
10 identicon
Sammála því að batnandi fólki er best að lifa og frábært að þú hafir fengið þetta símtal....tek ofan fyrir manneskjunni sem þetta gerði, hún/hann er stærri fyrir vikið!
Hún/hann er samt bara einn af mörgum sem þarna fóru stórum (reyndar ekki í fyrsta sinn) á berlendinu og þar fuku ansi margar fullyrðingar sem engan vegin er hægt að sætta sig við! Ég myndi til dæmis gjarnan vilja fá að vita hver þessi Ozzý er sem heldur því fram að hún bæði þekki þig og hefur nú komið í tveim þráðum með persónulegar fullyrðinar um þig! Ég held satt að segja að hún segi ósatt um að hún þekki þig/hafi þekkt þig!
Og já, það er sennilega fullt af fólki í barnaverndargeiranum sem vinnur vinnuna sína af ástríðu, ekki skyldu og á mikið þakklæti skilið fyrir störf sín....ekki eru þessi störf vel launuð allavega.
Mín skoðun er samt sem áður sú að þú hafir í gegn um árin lent illa í starfsfólki innan þessa geira og ég fer ekkert ofan af því að þú hafir verið óvenjuóheppin....það allavega ansi margt sem ég gæti gert alvarlegar athugasemdir við!
Svo hafir þú fyllst reiði...tjahh....þá held ég að það hljóti þá að vera ansi réttlát reiði.  Þetta er nú einu sinni mál sem varða börn og maður hefur ósköp takmarkaða þolinmæði þegar kemur að ungunum manns!
Rólyndismanneskja ég hef nú stundum farið á hliðina yfir þessum málum. 
En aftur já, vertu stillt og góð stelpa í dag....eins og þú ert auðvitað alla daga    og gangi þér/ykkur sem allta best á fundinum....svo og með áframhaldið á málinu!
Ég er stolt af þér stelpa!   
kv.,
Fysið. 
Fysið (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 15:44
11 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir
Sorgleg skrif sem dæma þá sem skrifa þau.Haltu áfram duglega kona og gangi þér vel
Birna Dis Vilbertsdóttir, 29.9.2008 kl. 19:58
12 identicon
Jesús Berglind mín hvað ég er gjörsamlega kjaftstopp yfir því hvernig fólk getur hagað sér.
En það er ekki langt síðan að ég lenti í þessu snarstropaða liði sem hangir öllum stundum þarna inn á þessari BL síðu.Sorglegt svona fólk.
Magga (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 12:06

No comments:

Post a Comment