... þegar ég slóst við félagsmálastjórann í Kópavogi og fleiri barnaverndar"sérfræðinga" vegna frumburðarins. Ég vildi óska þess að framganga barnaverndaryfirvalda í Kópavogi í þessu máli væri einsdæmi, en því fer fjarri. Þrátt fyrir það situr Aðalsteinn Sigfússon enn sem félagsmálastjóri bæjarins.
Hvar er eftirlit Barnaverndarstofu í þessu máli? Hvað er fólk á þeim bænum að hugsa? Er þetta það sem fólk vill búa við? Ætlum við endalaust að gefa ókeypis veiðileyfi á börnin okkar? Hvað er að þegar ekkert er að og allt er í lagi?????????? Ja kona spyr sig.....
Sannleikurinn er nefnilega sá, að barnaverndargeirinn á Íslandi er svo gerspilltur og rotinn, að réttast væri að leggja hann af með öllu, við værum engu verr sett þannig. Harkaleg orð segja kannski einhverjir, en ég stend við þau hvar og hvenær sem er. Og á fleiri kassa af gögnum máli mínu til stuðnings.
Sá að Björn Bóndi vinur minn hafði skrifað athugasemd hjá Dögg Pálsdóttur og hennar færslu tengdri þessari frétt, þar sem hann réttilega spyr um sök þeirra sem ekkert aðhafast þrátt fyrir grun. Það sorglegasta í þessu eru auðvitað öll þessi líf sem aldrei verða söm, og eiga eftir að slást við afleiðingarnar alla sína ævi. Það er auðvelt að drepa sálu barns, og menn sleppa með smánardóma fyrir svoleiðis brot. Svo svíkja menn undan skatti, og fá margfalt hærri dóma fyrir það! Finnið fimm villur.....
Ég fyllist vanmáttugri reiði, kannski helst vegna þess að á þeim 12 árum sem ég er búin að slást við þetta handónýta kerfi hefur ekkert breyst. EKKI NEITT!!!! (Ég er að semja langa færslu um slagsmál mín við þetta bévítans kerfi, hún kemur fljótlega.)
Að sjálfsögðu á að sækja Aðalstein og hans fólk til saka fyrir óvönduð og ófagleg vinnubrögð, og einnig fyrir að stuðla að áframhaldandi glæpum þessa manns. Kannski við færum þá að sjá að þetta fólk sem er í áskrift að laununum sínum færi að vinna vinnuna sína! Hugsa sig tvisvar um áður en það tekur gerræðislegar ákvarðanir, af því að Sigga bekkjarsystir á Dritvík bað einhvern um að gleyma þessu bara.
Við Héraðsdóm hef ég svo sem lítið að segja, en beini orðum mínum að hinum "háu herrum og frúm" á Alþingi - setjið ykkur í spor þessarra barna og foreldra sem þurfa að horfa upp á eyðilegginguna, og lesa svo um svona skammarlega dóma í blöðunum. BREYTIÐ HEGNINGARLÖGGJÖFINNI STRAX! Sýnið þessum skepnum að við líðum ekki þessa hegðun lengur, og að veiðileyfin á börnin okkar séu ófáanleg með öllu héðan í frá!
Ætli ég þurfi að fara á þing til að fá þessar breytingar í gegn? Ja, kona spyr sig enn og aftur.......

| 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot |
| Fyrst birt 31.7.2008 | 22:33 | |

Athugasemdir
Þetta er nefnilega þannig að þetta fólk (og þá er ég ekkert að tala um alla innan þessra nefnda því inná milli leynist prýðis fólk) er ekki í vinnu fyrir börnin, heldur ríkið/bæjarfélagið. Þannig vinna öll ríkisrekin batterí. Að finna lausnir á vandamálum sem henta stofnunni best en ekki skjólstæðingnum. Af því ef það væri þannig, að stofnunnin ynni fyrir skjólstæðingin þá gæti það kallað á óþægilegar niðurstöður eða erfiðleika í starfi og guð forði okkur frá því að þetta fólk þurfi að "díla" við slíkt.
Barnaverndarnefnd reykjavíkur er ekkert minna vanhæf en barnaverndarnefnd kópavogs í þessu máli þar sem báðar nefndirnar kjósa að loka augum og eyrum frekar heldur en að "skipta sér af".
Því miður held ég að þetta sé ansi oft svona, ekki bara þegar kemur að hugsanlegum kynferðisbrota málum heldur bara yfirleitt í málum sem berast til barnaverndarnefndar... Í það minnsta veit ég um of mörg dæmi um svona skítavinnubrögð. Þarf heldur ekkert að leita langt... en það er önnur saga.
Ég verð alltaf bara svo ofsalega sorgmædd og leið þegar ég les um svona fuck up...
Kær kveðja, Björn bóndi
Það er nefnilega þannig að ég lenti í umgengnisdeilu við barnsmóður mína sem vildi stöðva umgengni milli mín og sonar míns sem ég átti með þessari konu. Ég kærði það til Sýslumannsembættisins í Rvík. Hún fékk sér lögfræðing í málið, þ.e., hún leitaði til lögmannsstöfu DP-Lögmenn (Daggar Páls). Sjálfur hafði ég engan lögmann en fékk stuðning frá því sem þá hét Félag Ábyrgra Feðra (FÁF), þáverandi formanni þeirra Garðari Baldvinssyni sem vann hreint kraftaverk.
Úrskurður í málinu frá Sýslumannsembættinu í Reykjavík var barninu mjög í hag - mér og FÁF til mikillar furðu, því ég hafði heyrt um alræðisvald mæðra. Þessi úrskurður var síðan kærður til Kirkju- og dómsmálaráðuneytisins sem staðfesti úrskurðinn með 19 blaðsíðna þéttritaðri röksemdarfærslu. Allt barninu í hag, en barnið vildi fá að umgangast mig eins og það hafði alltaf gert, þar til móðirin "skipti um skoðun". Það hafði kostað grátur og gnístran tanna fyrir barnið.
Þér að segja, þá finnst mér einhvernveginn að lögmannstofan DP-Lögmenn hafi tekið mástað barnsins svo lítið bæri á. Ég man eftir viðtali sem var tekið við Dögg Pálsdóttur og var sent í loftið á sunnudagsmorgni fyrir nokkrum árum síðan að hún sagði orðrétt við þáttarstjórnandann: "Það er heilagur réttur hvers barns að fá að umgangast og þekkja báða foreldra sína". Svo mörg voru þau orð. Síðan hef ég alltaf virt þessa manneskju og tel hana rétta manneskju til að vinna að þessum málum!!
Ég hlakka til að skoða eitthvað frá þér - kannski á morgun?!?
Kveðja, Björn bóndi ïJð<