Friday, February 19, 2010

...finnið fimm villur...

...við innganginn í þessa frétt!
Hvað er að þegar ekkert er að og allt er í lagi????? Hvernig er hægt að réttlæta vinnubrögðin í þessu máli fyrir nokkurri vitiborinni manneskju? Það þarf ekki miklar mannvitsbrekkur til að sjá að eitthvað er að hjá Stefáni Eiríkssyni og Birni Bjarnasyni. Það er eiginlega löngu orðið ljóst að nú þurfa yfirstjórnendur lögreglunnar og ráðuneytis að hætta sandkassaleiknum sem þeir eru fastir í, hætta að karpa um hver fær að eiga sérsveitina og fjarskiptamiðstöðina, eða hvort það eigi að kaupa rafbyssur eða skammbyssur, nú eða setja á stofn her eða aukalið, og FARA AÐ VINNA VINNUNA SÍNA! Anyone????
Það er kominn tími til að þeir sem vinna við löggæslu á Íslandi fari að tileinka sér vinnubrögðin: To protect and serve. Erum það ekki við skattgreiðendur sem borgum þeim laun? Er ekki í lagi að við gerum þá kröfu að þetta fólk vinni vinnuna sína, sinni skyldu sinni við að vernda æsku landsins, sjá til þess að vondu kallarnir fái makleg málagjöld, og hætti að karpa um það hver á sterkari pabba, eða getur migið lengra?
Einkunnarorð lögreglunnar ættu að vera: Til þjónustu reiðubúin, en ekki Haltu kjafti og hlýddu eða við berjum þig fíflið þitt!
Opinberir starfsmenn eiga ekki að vinna eftir því að sjálfs sé höndin hollust, heldur eiga þeir að vinna í þágu almennings, enda valdi þetta fólk sér starf í opinbera geiranum sjálft. Ekki sneri ég upp á hendina á Stefáni Eiríkssyni og neyddi hann til að velja sér starf fyrir hið opinbera.
Og ekki minnast á þetta bévítans barnaverndarpakk í mín eyru. Löng og harkaleg færsla á leiðinni um þann málaflokk, einn djöfuls ganginn enn! Hún kemur ekki alveg strax, þar sem hugsa þarf um saklausar sálir í þeim efnum.
Arrrrrggggg!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hvað eru allir þessir fjögurhundruðog eitthvað stjórnendur í lögreglunni að gera, ef álagið á lögregluna er svo mikið að ekki er hægt að sinna jafn grafalvarlegum málum og þessu? Ja, kona spyr sig....

mbl.is Álag á lögreglu tafði rannsókn
Fyrst birt 25.9.2008 | 10:13

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson
Pólitík Berglind, pólitík.
BB skeindi Haraldi Jóh. þegar hann var lítill og er enn að skeina honum.
Stefán er pólitískt skipaður.....
Framapot einstakra lögregluforingja er búið að blinda þá.......
Lögreglan og Lögregluskólinn eru svo fjársvelt að það fást ekki nema hálfdrættingar til að vinna þessa vinnu......
BB er ráðherra dómsmála til að þjónusta sjálfstæðisflokk og þeirra gæðinga, og til að þjóna eigin vænisýki og mannfyrirlitningu....
....pólitík.....pólitík.....pólístík......
Haraldur Davíðsson, 25.9.2008 kl. 11:40
2 Smámynd: Gísli Sigurður
fáránlegt, ekkert annað en fáránlegt.
Ætti með réttu að gera Björn og hans strengjabrúður réttdræpa. (orðum ofaukið kannski?)
æj ég veit ekki, hef ekki hugmynd um til hvers við þurfum að borga skatta fyrir lögregluna ef að störf hennar afreka ekki nokkrum sköpuðum hlut.
Gísli Sigurður, 25.9.2008 kl. 21:41
3 Smámynd: Kolbrún Hilmars
Too many chiefs and too few indians - that´s the problem.
Fyrirgefðu slettuna, Berglind mín, en enskan er oft skilvirkari en hið ylhýra...
Kolbrún Hilmars, 26.9.2008 kl. 22:56

No comments:

Post a Comment