Friday, February 19, 2010

...ef þetta væri bara svona einfalt...

... eins og Landlæknir lætur í veðri vaka að það sé að leita álits annars læknis á Íslandi í dag. Því miður er það ekki raunin. Allavega ekki fyrir alla. Ég veit reyndar að þetta er hægt þegar kemur að börnunum okkar og barnalæknum, en málin verða öllu snúnari þegar kemur að geðlækningum, sem eru þó eðli málsins samkvæmt þannig að maður ætti að geta farið fram á að fá álit annars læknis, eða hreinlega fá að tala við annan lækni.
Á öllum geðdeildum landsins er það ennþá svo, að þér er úthlutað geðlækni, sem á að vera þinn aðal-meðferðaraðili, og þér sem sjúklingi ber að fara eftir fyrirmælum læknis þíns, hvort sem þér líkar betur eða verr. Þetta er ekki fyrirkomulag sem er vænlegt til árangurs. Því miður.
Hér rifjast upp fyrir mér tími þegar ég var á geðdeild Borgarspítalans sáluga, og var úthlutað "geðlækni", sem var reyndar ekki geðlæknir heldur var hann læknir í sérnámi þá.  Þetta var læknirinn sem ég "átti" að tala við um mín mál. Ég er hins vegar þeim ósköpum gædd, að ég hreinlega ÞOLI EKKI að tala við fólk, sem situr með lappirnar uppi á borði, lygnir aftur augum og hummar og jánkar af og til. Mér finnst þetta viðmót ekki vera hvetjandi fyrir mig sem einstakling til að tjá mig um hvað sem er, og síst af öllu erfið tilfinningamál. En það er sennilega þessvegna sem ég er geðveik, er það ekki?
Allavega virtist þessum ákveðna lækni finnast þetta viðeigandi vinnubrögð í geðlæknaviðtölum, og hélt þessu til streitu í þessa mánuði sem ég gekk til hans, fyrst inni á deild og síðan á göngudeild. Og krapp hvað ég þoldi kappann ekki. Hann gat með engu móti meðtekið þá staðreynd að ég væri búin að vera edrú í einhver ár þegar þetta var, og í hverju bréfinu á fætur öðru til TR stóð "sjúklingur hefur verið frá áfengi að eigin sögn í einhvern tíma" eða eitthvað álíka loðið. Ekki að ég sé eitthvað upptekin af árum, en grundvallaratriði samt að læknirinn manns hafi staðreyndir á hreinu. Ég margreyndi að fá annan geðlækni, þar sem mér var gersamlega fyrirmunað að ná nokkru sambandi við þetta grey sem átti að heita læknirinn minn, en fékk jafnharðan þau svör að það þýddi ekkert að vera með mótþróa í meðferðinni. Ef ég gæti ekki sætt mig við lækninn "MINN" - þennan sem gat ekki einu sinni haft staðreyndir um mig á hreinu, á blaði fyrir framan sig, sat annarshugar í viðtölum með lokuð augu og hummaði eitthvað út í loftið -þá væri ég ekki að taka meðferð, og gæti þá bara hypjað mig heim!
Enn þann dag í dag er fyrirkomulagið þannig að ef þú vilt fá annan geðlækni, þarftu að tala við gamla lækninn og fá hann til að samþykkja að hætta að vera læknirinn þinn! Þá fyrst geturðu fengið annað álit! Og æði margir geðlæknar á Íslandi eru haldnir þeirri meinvillu að þer eigi sjúklingana sína, og geti leikið sér að því að gera tilraunir á þeim með lyf og meðferð, og það komi sjúklingunum sjálfum afskaplega lítið við!
Semsagt - þér er velkomið að leita álits annars læknis - svo framarlega sem þú ert ekki geðveikur og gerir kröfur um að læknirinn þinn sýni þér og líðan þinni einhvern áhuga!
Skyldi þetta breytast með nýjum sjúkratryggingalögum? Ja, kona spyr sig....

mbl.is Fólk leiti annars álits
Fyrst birt 15.9.2008 | 02:53

Athugasemdir

1 identicon
Sæl Berglind, ég hugsaði eitthvað svipað þegar ég las þessa frétt en sem
betur fer veit ég að það er hægt að skipta um geðlækni ef farið „er rétt
að"  Þ.e.a.s. ef maður kynnir sér fyrst það sem segir í Góðum starfshættum
lækna
og/eða tala svo við einhvern sem þekkir til og er til í að skýra það
út fyrir lækninum að maður vilji "segja honum upp"
En við þessu má líka bæta að fólk mætti nýta sér læknaviðtölin miklu betur en það gerir. Ég held að margir mættu líta í eigin barm og spyrja sig að því til hvers þeir eru
að fara til geðlæknisins, læknisins sem ræður hvað meðferð á að beita, en
samkvæmt því sem segir í starfsháttum hans þá á hann að leyfa viðkomandi
skjólstæðingi að vera með í ráðum.
Bergþór Grétar Böðvarsson (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 11:46
2 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir
Heyr heyr
 Orð í tíma töluð
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 15.9.2008 kl. 18:25
3 Smámynd: Haraldur Davíðsson
Þörf ábending vinkona...
Haraldur Davíðsson, 15.9.2008 kl. 19:10
4 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir
Heyr heyr
Birna Dis Vilbertsdóttir, 16.9.2008 kl. 20:03
5 Smámynd: pirrhringur
Ógnvænlegt.
pirrhringur, 18.9.2008 kl. 20:53
6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir
Innlitskvitt og góðar ljúfar kveðjur.
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.9.2008 kl. 22:01
7 Smámynd: Kolgrima
Úff, ég fæ bara hroll. Hafði ekki hugsað út í þennan hluta heilbrigðiskerfisins þar sem er svo auðvelt að segja að það hljóti eitthvað að vera að sjúklingnum ef hann er ekki ánægður með lækninn...
Kolgrima, 24.9.2008 kl. 10:50

No comments:

Post a Comment