Thursday, February 18, 2010

Ekki puttabrotin á öllum......

....eins og ég var spurð að um daginn, bara verið löt við að blogga. Kannski verið meira upptekin af skólaböllum, dyragæslu og skipulagningu jólahjólaballs en venjulega. En það er líka eina afsökunin sem ég hef.
Hitti vinkonu mína í kaffibolla í kvöld. Komst að því að hugleysi og bleyðuskapur einkenna mig þessa dagana. Ekki viss hvað ég á að gera í því, annað en að bíta á jaxlana sem voru rifnir úr mér '86 og stíga skrefinu lengra en ég þori - einhvern daginn.
Arg, hvað þessi tilvera getur verið snúin og erfið stundum! Well, hef svo sem staðið frammi fyrir erfiðari hlutum og komist í gegnum þá, þannig að það er engin raunhæf ástæða eða afsökun fyrir heigulshættinum í mér núna! Geng í málið - um helgina kannski! Hehehehe!
Hitti samleikara úr Þjóðarsálinni á kaffihúsi í gær, algert æði að hitta þessi fatlafól! Okkur taldist til að rétt um þessar mundir væri liðið heilt ár frá síðustu sýningu! Mikið líður tíminn hratt! Mér finnst ég hafa staðið á þessu risasviði í gær eða fyrradag! OK, OK, kannski ekki alveg, en allavega í síðustu viku!!!!!  Er enn yfir mig þakklát fyrir þessa reynslu, og fyrir að hafa kynnst öllu þessu frábæra fólki sem tók þátt í þessu ævintýri!
Annars er lítið títt! En engar fréttir eru góðar fréttir eða hvað? Á hinn bóginn er illt umtal betra en ekkert umtal, svo kannski er ekkert gott að ekkert sé að frétta??? HMMMMMMMMM
Frumburðurinn er klárlega fluttur að heiman, rekur inn nefið þegar lyktin af honum er farin að ofbjóða honum og kærustunni og skutlar sér í sturtu hjá mömmu gömlu. Jú og auðvitað þegar mamma býður í grjónagraut og slátur, eða gamaldags sunnudagslæri! Skrýtið ástand samt, en það venst furðu fljótt!
Örverpið er líka ósköp ánægt með að hafa herbergið út af fyrir sig! En óneitanlega er kominn nýr taktur í heimilislífið, heldur hægari og rólegri en var. Reyndar hefur matarreikningurinn - já og kaffireikningurinn líka - lækkað heilan helling! Það hlýtur að vera jákvætt, er það ekki?  Ja, maður spyr sig.......

Fyrst birt 21.11.2007 | 02:26

No comments:

Post a Comment