Thursday, February 18, 2010

Af gefnu tilefni........

.... skal það staðfest hér að ég á ENGA vini!!!!! Bara óvini sem tala um mig á blogginu sínu, gefa mér hin hræðilegustu viðurnefni, og hringja ALDREI í mig!!!!!!!!
Hehehehehe!!!! Ég er nokkuð góð þessa dagana, svona fyrir utan flensufár og fjölskylduleiðindi, en það er svo sem ekkert nýtt. Búin að skemmta mér við að undirbúa gæsludjamm á laugardag, og vonandi verður jafn gaman á laugardaginn og í undirbúningnum.
Annars lítið títt, frumburðurinn er kominn til byggða á nýjan leik, móður sinni til mikillar ánægju. Pétur sem er ekki vinur minn, frekar en neinn annar, kom í eigó beikó á sunnudag ásamt Atla, og þegar þeir voru búnir að hjálpa mér að slátra jeppahræinu, ákvað Pétur að raða geislasafninu upp á nýtt, þannig að nú á ég voða fínt geislasafn í STAFRÓFSRÖÐ!!!!!!!
Annað var það nú ekki, enda ekki von á góðu þegar kona liggur í bælinu með 40 stiga hita!
En hitt er svo annað mál, hvort það er von á einhverju skárra þegar kona er orðinn hitalaus. Kona spyr sig.........

Fyrst birt 27.9.2007 | 20:47

Athugasemdir

1 identicon
Ég auðvitað alls ekki vinur þinn, ekki frekar en neinn annar í þessum heimi Mér datt bara í hug að skrifa á síðuna þína til þurfa alls ekki að hringja í þig. Ég er líka svo heppin að vita ekki emailið þitt og þekkja þig yfirhöfuð ekki neitt, svo ég slepp bæði við að skrifa þér og tala við þig á förnum vegi.
Hef heyrt að það gangi mjög vel fyrir fólk eins og þig að fara í skátahreyfinguna eða krossinn.
Hvaða aulauppnefni áttu svo og hverjum dettur eiginlega í hug að blogga um þig?
Addý (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 22:23
2 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir
Víst áttu vini hvaða óráð er þetta. Vonandi er ég ein að þeim. Ég hringi aldrei pottþétt er með símafælni á háu stigi. Kem oftar til þín en þú til mín......
Nei bara vildi láta þig vita að ég er vinur þinn og ekki er hægt að mæla vináttu í símhringingum, bloggumtali, heimsóknum, tölvupóstum eða uppnefningum.
Vonandi rennur óráðið fljótlega af þér og við getum farið að knúsast
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 27.9.2007 kl. 23:43

No comments:

Post a Comment