... kallanginn er alltaf að fá skömm í hattinn fyrir reykingar. Hann kvartaði sáran undan þessu síðast þegar hann hélt tónleika hér, því þá lenti hann í dyraverjunni ógurlegu á einu öldurhúsi bæjarins, kvöldið fyrir tónleika. Fyrir verjunni (eða ætti ég að segja rifbeininu?) var hann bara N1 - æ fyrirgefið þetta á víst að vera ENN EINN kúnninn sem ekki virtist skilja þetta með að reykingar væru einungis leyfðar UTANDYRA, og töldu það í lagi að reykja RÉTT INNAN VIÐ DYRNAR, en verjan atarna er nú ekki vön að kalla allt ömmu sína þegar kemur að kúnnum ( obbosí - var ég ekki að tala um rétta íslensku um daginn; höfum þetta VIÐSKIPTAVINI!) öldurhúsanna, og lét sig ekki fyrr en kallgreyið barðist út fyrir dyrnar í hinn dásamlega íslenska vetur, með slagviðristilbrigðum (þetta er örugglega íslenskt orð, er það ekki?) til að klára vindlinginn, áður en hann sneri aftur inn í hlýjuna til að drekka bjórinn sinn. Rifbeinið/verjan lét dularfullar augngotur frá kallinum ekkert trufla sig og hélt uppi röð og reglu, eins og henni bar. Kvöldið eftir,þegar kall kom í hús, uppgefinn, en upprifinn líka, eftir góða tónleika (eftir því sem ég kemst næst, því mér var sko ekki boðið á þessa tónleika frekar en á Clapton) ætlaði hann að endurtaka leikinn, enda veðrið ekkert til að vera upprifinn yfir, en bévítans rifbeins-verjan var enn og aftur á vakt, og greip í taumana alveg um leið og vindlingurinn var kominn í munnvik karls innan við dyrnar. Kall setti hausinn undir sig og lét sig hafa það að stíga út í veðurofsann, hann var nefnilega snöggtum skárri en ofsinn í beinverjunni, skal ég segja ykkur. Hún hinsvegar sá hvað kallanginn varð aumur, og brosti blíðlega til hans, um leið og hún gekk fram hjá honum úti í veðurhamnum. Heyrði svo kallinn tauta eitthvað á ensku í átt til hennar, og svaraði á reiprennandi dönsku. Þá kom nú heldur betur á kalltuskuna, og hann varð eins og bráðið smér í höndum hennar það sem eftir var af dvölinni á títtnefndu öldurhúsi, söng fyrir hana Susanne i det himmelblå, og tjáði aðdáun sína á verjubeininu ógurlega. Kvaddi svo með virktum og lofaði mörgum boðsmiðum á næstu tónleika hans á skerinu.
Skil nú ekkert í því að hann skuli ekki hafa sent mér bara boðsmiða í Vejle Musikteater, mér dygði einn miði á tónleikana, og svo auðvitað flugmiði fram og tilbaka!
Annars er ég með áhyggjur af systur Margréti þessa dagana! Þrátt fyrir harmakvein í síðustu vefdagbókarfærslu, hefur hún ekki sinnt Indu óðflugu sem skyldi, og það hefur ekki komið stafur inn á vefdagbókina hennar í hálfa aðra eilífð! Er nú svo komið að hér duga engin vettlingatök, og harkan sex hefur lítið að segja í þessum slag! Er núna að velta því fyrir mér, hvort harkan sjö komma fimm dugi, eða hvort enn harkalegri aðgerða sé þörf. Því bið ég þig lengstra orða elsku Magga mín, að drífa nú í að setja eitthvað inn á vefdagbókina þína hið snarasta, og fara að sinna óðflugunni af einhverju viti, og það ekki seinna en STRAX, því þú VEIST hvað ég er lítið fyrir að fara úr vettlingunum og beita mér af einhverri óþarfa hörku! En rétt eins og með Larsen kallinn, get ég alveg tekið í þig, ef því er að skipta sko!
Með þessu held ég að ég bjóði lesendum góðar stundir, og hverfi á vit ævintýranna í draumalandinu. Skyldi systir Margrét herða sig á meðan, og fara að sinna óðflugunni? Ja, kona spyr sig.....

| Kim Larsen fer í hart |
| Fyrst birt 30.8.2008 | 05:50 | |

Athugasemdir
Enginn vettlingatök, það þarf að tala við systur Margréti á hreinni Íslensku.
Góða nótt og takk fyrir nóttina ....
Inda
...ekki myndi ég derra mig mikið við þig, ég veit að þú stendur föst á þínu.
'Eg var nefninlega farin að halda það að ég mundi standa uppi vinalaus og ég get sko ekki staðið í því.Þannig að núna er óðflugan farin að ELSKA mig aftur og allt orðið eins og það á að vera.
Löngu hætt að reykja og nenni ekki að vorkenna þeim sem gera það enn :D
Annars bara að kasta á þig kveðju skvísa, finnst þú ferlega flott með varalit og blúndu. Geri ráð fyrir því að þú sért búin að versla vel af þeim (varalitunum)
Kveðja til þín Halla