Thursday, February 18, 2010

Heilbrigðisþjónusta í hæsta gæðaflokki????

Það er ótrúlegt að íslensk stjórnvöld skuli státa sig af heilbrigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki á heimsvísu, og senda svo svona fréttir frá sér. Sýnir enn og aftur - svart á hvítu - að börnin okkar eru ekki forgangsatriði! Þau eru nefnilega ekki með atkvæðarétt og eiga því ekki rétt á neinu, er það? Það sem er þó óskiljanlegra er að öll þessi börn eiga foreldra sem ERU með atkvæðarétt, en samt sem áður virðist sem ekkert breytist. Mér finnst það stórkostlega athugavert að meira en 6 árum eftir að bent er á húsnæðis- og fjárhagsvanda BUGL, skuli heilbrigðisráðherra loksins láta sjá sig með póleraða skóflu til að taka skóflustungu, og státa sig af því að standa við bakið á börnum þessa lands.
Um daginn var rætt um það í fréttum að ástandið á Dalbrautinni væri orðið þannig að starfsfólk hefðist ekki við í kjallara hússins, sökum raka og fúkkalyktar. Samt sem áður er mikið af meðferð barnanna á Dalbraut sem fer fram í áðurnefndum kjallara!

Sem móðir og kjósandi í þessu "velferðarþjóðfélagi" krefst ég þess að ráðherrar, þingmenn og þeir sem sitja við stjórnvölinn verði látnir sæta ábyrgð! Það að láta vandann sitja á hakanum, þangað til peningafólkið getur ekki setið hjá lengur, er eitthvað sem stjórnvöldum á ekki að líðast að gera - trekk í trekk!
Svipað dæmi er upp á teningnum með unglingadeild SÁÁ.
Hvenær fáum við nóg????????



Fyrst birt 20.2.2007 | 22:40

mbl.is Skóflustunga tekin að nýrri göngudeild BUGL

No comments:

Post a Comment