... þegar við stöllur og fóstursystur (að eigin vali, því maður GETUR valið sér fjölskyldu!) skruppum suður með sjó til að kíkja í skúrinn hjá þeim Gamla. Sá Gamli var nefnilega búinn að biðja mig að kíkja um helgina til að taka annað hlass af gömlum verkfærum, og ég ákvað að taka sys með, vitandi að hún er engu skárri en ég þegar kemur að verkfærum. Og ekki stóð á því, við vorum varla komnar suðurúr, rétt búnar að stinga nefbroddinum inn fyrir skúrdyrnar þegar fór að heyrast í henni: Hvað ER þetta eiginlega? Til hvers er þetta? Hvernig notar maður þetta? Sá Gamli skemmti sér konunglega, og lofaði sys að við fengjum góðan fyrirlestur og sýnikennslu við gott tækifæri!
En þvílíkir fjársjóðir sem við fórum með heim úr skúrnum. Ég sé fram á að við getum vel opnað flott antik-verkfærasafn, svona þegar við erum orðnar gamlar og leiðar, og hættar að sniglast! Mér þykir líka óendanlega vænt um að sá Gamli treysti mér fyrir þessum fjársjóðum, því ég veit af eigin raun að ég vil ekki að gamla dótið sem ég hef haft fyrir að safna fari hvert sem er eða í hendurnar á hverjum sem er! Sennilega er ég ekki dóttir þess Gamla fyrir ekki neitt!
Reyndar liggur fyrir ómæld vinna í að hreinsa upp gömul verkfæri, einkum gömlu verkfærin frá Knau hinum þýska blikksmið, sem valdi sér að búa á Ísafirði, en þar liggja líka ótrúlegir fjársjóðir! En það voru ekki bara gömul verkfæri sem rötuðu út í bíl, heldur líka heill haugur af handverki frá þeim Gamla. Kannski er ég svona klikkuð, en mér finnst það skipta máli að halda í svona hluti fyrir komandi kynslóðir. Og ég veit að þegar að því kemur að sá Gamli er ekki hérna heims lengur, mun mér þykja enn vænna um þetta!
Við sys áttum svo ofsalega gott spjall á báðum leiðum, alltaf gott að viðra aðeins hausinn á sér og fá lánaða dómgreind annarsstaðar! Takk fyrir það sætust!
Annars er svo margt að hrærast í mér þessa dagana, og ekki lagast það þegar maður fer bloggrúntinn að lesa. Alltaf skal einhver sárasaklaus sál ná að hrista aðeins upp í mér með eitthvað, hvort sem það er gamalt eða nýtt. Þessi kona hefur ótrúlegt lag á að hræra aðeins í mér - á jákvæðan hátt - svo ég má til með að linka á hana! Hreint frábær penni og ótrúleg lífsreynsla sem liggur að baki. Svona langar mig að verða þegar ég verð stór!
Skyldi koma að því einn góðan veðurdag? Ja, kona spyr sig...
Fyrst birt 20.4.2008 | 02:48 En þvílíkir fjársjóðir sem við fórum með heim úr skúrnum. Ég sé fram á að við getum vel opnað flott antik-verkfærasafn, svona þegar við erum orðnar gamlar og leiðar, og hættar að sniglast! Mér þykir líka óendanlega vænt um að sá Gamli treysti mér fyrir þessum fjársjóðum, því ég veit af eigin raun að ég vil ekki að gamla dótið sem ég hef haft fyrir að safna fari hvert sem er eða í hendurnar á hverjum sem er! Sennilega er ég ekki dóttir þess Gamla fyrir ekki neitt!
Reyndar liggur fyrir ómæld vinna í að hreinsa upp gömul verkfæri, einkum gömlu verkfærin frá Knau hinum þýska blikksmið, sem valdi sér að búa á Ísafirði, en þar liggja líka ótrúlegir fjársjóðir! En það voru ekki bara gömul verkfæri sem rötuðu út í bíl, heldur líka heill haugur af handverki frá þeim Gamla. Kannski er ég svona klikkuð, en mér finnst það skipta máli að halda í svona hluti fyrir komandi kynslóðir. Og ég veit að þegar að því kemur að sá Gamli er ekki hérna heims lengur, mun mér þykja enn vænna um þetta!
Við sys áttum svo ofsalega gott spjall á báðum leiðum, alltaf gott að viðra aðeins hausinn á sér og fá lánaða dómgreind annarsstaðar! Takk fyrir það sætust!
Annars er svo margt að hrærast í mér þessa dagana, og ekki lagast það þegar maður fer bloggrúntinn að lesa. Alltaf skal einhver sárasaklaus sál ná að hrista aðeins upp í mér með eitthvað, hvort sem það er gamalt eða nýtt. Þessi kona hefur ótrúlegt lag á að hræra aðeins í mér - á jákvæðan hátt - svo ég má til með að linka á hana! Hreint frábær penni og ótrúleg lífsreynsla sem liggur að baki. Svona langar mig að verða þegar ég verð stór!
Skyldi koma að því einn góðan veðurdag? Ja, kona spyr sig...
Athugasemdir
Mér sýnist þú sjálf vera full af jákvæðni þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm. Gott að þú átt góða að.
Takk fyrir bónorðið.
En Berglind mín Nanna ég er ekkert kort farin að fá enn.:( kveðja.
Getum við "dottið" í það í kvöld kannski? Viltu allavega vera svo sæt að lána mér vottorðið þitt í nokkra daga....
Það er ágætis að geta valið sér fjölskyldu....allavega er það mín reynsla sweetest.