... þessum orðum heilbrigðisráðherra????? Skyldi það hafa eitthvað að gera með það að íþróttaálfurinn Guðlaugur Þór virðist lítinn sem engan skilning hafa á málefnum geðsviðs? Eða af því að ég er þolandi geðsviðs Landspítala og bíð þess sennilega seint bætur?
Allavega er það á hreinu að ég kem ekki til með að leita aðstoðar þangað, hversu illa sem ég fer úr þessari ekki-kreppu Geirs fjárhagslega eða andlega. Það er alveg á hreinu.
Í þessu sambandi er nú gaman að segja frá því að í ársbyrjun 2005 var haldin ráðstefna í Helsinki á vegum Alþjóða Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu Þjóðanna (WHO) þar sem íslenskir ráðamenn voru sendir heim með þær fyrirskipanir að taka til í geðheilbrigðismálum sínum, og hafa þar sjónarmið notenda þjónustunnar að leiðarljósi, notendur skyldu í æ ríkari mæli hafa eitthvað um þjónustuna að segja, og verða starfsmenn þjónustunnar í auknum mæli.
Þá er nú einstaklega gaman að segja frá því að í ljósi þessa, var ráðinn notandi -alveg EINN -inn á geðsvið LSH, sem skyldi vera sérlegur talsmaður notenda, sitja í gæðaráði LSH, og vinna að því að þjónustan yrði notendavænni. Bara gott mál.
Síðustu fregnir herma hins vegar að hann fái ekki aukningu á starfshlutfalli sínu, vegna innanhúss-valdabaráttu á geðsviði. Þessi toppurinn eða hinn gaf ekki samþykki sitt fyrir ráðningunni. Ja, eða kannski bara ekki til peningar þó hægt sé að veita forstjóranum 25% launahækkun á einu bretti í þessari ekki-kreppu.
Og svo er fólk hissa að ég hafi litla trú á heilbrigðisráðherra og fögrum loforðum? Skyldu þessi vera jafn innantóm og þau sem Breiðavíkurdrengir og Byrgisfólkið fékk? Ja, kona spyr sig...

| Heilbrigðisþjónustan í viðbragðsstöðu |
| Fyrst birt 7.10.2008 | 10:55 | |

Athugasemdir
Ég veit af eigin reynslu (nokkuð langt síðan) hvernig málin á geðdeildinni hafa verið sett.
Ekki í góðum málum.
kv.
B. G. B. fulltrúi notenda á geðsviði LSH
Hefði svo gjarnan viljað sjá einhvern sem hefur ofurtrú á íþróttaálfinum! En það er sennilega bara geðveikin í mér!
Annars heyrði ég viðtal við Engilbert yfirlækni geðsviðs í Speglinum í kvöld, og nú á alls ekki að bjóða þessa þjónustu INNAN geðsviðs - enda allir þessir geðveiku stórhættulegir - heldur er búið að finna hentugt húsnæði út í bæ, og verða alls þrjú stöðugildi í þessari þjónustu; tveir meðferðaraðilar og einn móttökuritari. Enn er þó eftir að manna stöðurnar. Spurning hvaðan þetta fólk verður tekið, því varla fara þeir að ráða inn nýtt fólk?
Er alltaf á leðinni að senda þér póstum málið þú veist, samtalið og það en hef hreinlega ekki gefið mér tíma, er enn að vinna í málinu og sendi kannski bara póst á þig í kvöld eftir frekari vinnu í málinu..... Þú ert hvunndagshetja nr. eitt og hefur mikið rétt fyrir þér í þessum málefnum, hef sjálf ekki góðar sögur úr þessum "uppáhalds"-málaflokkum.
Svo mikið veit ég að sé ástandið óbreytt þá óska ég ekki mínum versta óvin dvalar á þessum stað....
Það væri allavega í anda óbreytts fyrirkomulags, eins og ég þekkti það, ef Notandinn væri svo bara fyrir vegna þess að hann gerir kröfur sem notandi!
Nú man ég ekki betur en að Guðlaugur Þór hafi hælt LSH mikið eftir þær brunahremmingar sem hann lenti í......er ekki málið bara geðsjúkur heilbrigðisráðherra?!