... helgin það er að segja.
Blessuð geðveikin er aðeins búin að vera að stríða mér þessa vikuna, kosturinn er þó óneitanlega sá að ég er búin að vera "óhemju"dugleg heima hjá mér! Datt sem sagt í vægt maníukast um síðustu helgi, og síðan þá er ég búin að sótthreinsa svefnherbergið mitt, endurinnrétta það, taka til í fataskápunum mínum, skúra íbúðina þvera og endilanga, sótthreinsa stofuna og endurinnrétta hana, taka blómin á heimilinu í gegn, þvo sirka þrjú tonn af þvotti, blogga slatta, skrifa skrilljón e-mail, ná 14.level í Tetrollapse, djöflast á feisbúkkinu, fara í tvær veislur, skipuleggja þrjú matarboð, með matseðli og öllu, auk þess að fara í fjöruferð til að hreyfa tíkina og hreinsa hugann, skutlast með fólk hingað og þangað um borgina, og ég er samt örugglega að gleyma einhverju! Meðal svefn hefur verið 1 - 2 tímar á sólarhring, en ég náði loksins að sofa í nótt/morgun/dag í eina 8 tíma. Kom semsagt ekki heim fyrr en undir 8, svo ég svaf fram eftir degi. Er líka komin í bælið fyrir löngu aftur, og við það að detta út af. Lofaði fysinu samt smá línu hér.
Vill mér til happs að ég á ofboðslega góða vini, sem koma alveg í staðinn fyrir geðlyfin, og þau hafa hjálpast að við að halda mér eins nærri jörðinni og mögulegt er. Og djö.... er ég orðin þreytt í þrifafrumunni maður! Búin að þrífa og þrífa og þrífa og þrífa. Þessi fruma er algerlega uppgefin! Eins gott að eiga góða vini, sem sjá um að dekra við mig við arineld og skrúfa mig niður í rólegheitum! Takk fyrir það!
Fer malandi að sofa, eftir alveg ágætis helgi, og ágætis dag! Skyldi ég vakna malandi á morgun? Ja, kona spyr sig.....
Fyrst birt 2.6.2008 | 03:30Blessuð geðveikin er aðeins búin að vera að stríða mér þessa vikuna, kosturinn er þó óneitanlega sá að ég er búin að vera "óhemju"dugleg heima hjá mér! Datt sem sagt í vægt maníukast um síðustu helgi, og síðan þá er ég búin að sótthreinsa svefnherbergið mitt, endurinnrétta það, taka til í fataskápunum mínum, skúra íbúðina þvera og endilanga, sótthreinsa stofuna og endurinnrétta hana, taka blómin á heimilinu í gegn, þvo sirka þrjú tonn af þvotti, blogga slatta, skrifa skrilljón e-mail, ná 14.level í Tetrollapse, djöflast á feisbúkkinu, fara í tvær veislur, skipuleggja þrjú matarboð, með matseðli og öllu, auk þess að fara í fjöruferð til að hreyfa tíkina og hreinsa hugann, skutlast með fólk hingað og þangað um borgina, og ég er samt örugglega að gleyma einhverju! Meðal svefn hefur verið 1 - 2 tímar á sólarhring, en ég náði loksins að sofa í nótt/morgun/dag í eina 8 tíma. Kom semsagt ekki heim fyrr en undir 8, svo ég svaf fram eftir degi. Er líka komin í bælið fyrir löngu aftur, og við það að detta út af. Lofaði fysinu samt smá línu hér.
Vill mér til happs að ég á ofboðslega góða vini, sem koma alveg í staðinn fyrir geðlyfin, og þau hafa hjálpast að við að halda mér eins nærri jörðinni og mögulegt er. Og djö.... er ég orðin þreytt í þrifafrumunni maður! Búin að þrífa og þrífa og þrífa og þrífa. Þessi fruma er algerlega uppgefin! Eins gott að eiga góða vini, sem sjá um að dekra við mig við arineld og skrúfa mig niður í rólegheitum! Takk fyrir það!
Fer malandi að sofa, eftir alveg ágætis helgi, og ágætis dag! Skyldi ég vakna malandi á morgun? Ja, kona spyr sig.....
Athugasemdir
Og engar áhyggjur, við sjáum um að halda þér eins nálægt jörðu og hægt er. Nenni ekkert að rausa um að þú eigir að sofa meira eða hætta að þrífa....bíð bara eftir að svampar og þvottalögur klarist og þú lekir niður..sofir í hálfan sólarhring eða svo!
Haraldur: Já, mér finnst að það ætti að vera hægt að fá lyfseðil upp á góða vini, þeir hafa allavega gert mér miklu betra og meira en geðlyfin nokkurn tíma!!!
Rannveig: Já ef ég er ekki endanlega búin að ganga af þrifafrumunni dauðri, skal ég senda þér hana - alveg um leið og íbúðin er orðin spikk og span, og búið að taka til í geymslunni líka! Múhahahahaha!!!!
Náði nú að sofa í eina 10 tíma núna, þannig að ástandið er að nálgast normið aftur held ég. Allavega gat ég sest niður og skoðað póst og helstu fréttir án þess að þurfa fyrst að setja í þvottavél eða þurrka af borðum! Ágætis alveg!
Knús á ykkur öll og takk fyrir að vera til!
FRIÐUR (er alltaf eins þótt okkur sýnist annað)
farðu vel með þig .