Friday, February 19, 2010

Barnaníð og viðlíka kenndir....

... virðast vera að tröllríða bloggheimum þessa dagana. Halla Rut vinkona mín hefur nú aldeilis stungið á auman blett á þjóðarsálinni með færslum sínum um réttlæti myndbirtinga, og kvikindið ég hef skemmt mér (ef skemmtun skyldi kalla) við að henda inn athugasemdum á þessar færslur hennar. Enda er þetta málefni sem er mér mikið hjartans mál, eins og þeir sem þekkja mig, eða þekkja jafnvel bara aðeins til mín, vita. Hins vegar vita þeir það líka sem þekkja mig, en hinir kannski ekki, að fátt er mér jafn illa við og að vera kölluð fórnarlamb. Sem óvirkum alka er sjálfsvorkunn mér stórhættuleg. Ef ég vel mér hlutverk fórnarlambsins, hef ég gefið sjálfa mig sjálfsvorkunninni á vald, einn ganginn enn. Það er hreinlega ekki í boði hjá þessari konu hér. Um leið og ég segi að ég sé fórnarlamb, er ég nefnilega að skella allri skuldinni á einhvern annan, eða einhverjar aðstæður sem mér eru um megn.
Nú misskilja mig klárlega einhverjir, og tauta í hálfum hljóðum að þessi snarklikkaða kona sé endanlega gengin af göflunum, hvort hún eigi í raun og sann við að atburðirnir hafi verið henni sjálfri að kenna! En það er langur vegur frá að svo sé! Hins vegar er það þannig að ég hef sjálf allt um það að segja hvernig ég vinn úr þeirri reynslu sem ég hef gengið í gegnum, og með því að taka ábyrgð á ÞVÍ er ég jafnframt að afsala mér hlutverki fórnarlambsins. Það er alveg undir sjálfri mér komið hvort ég læri af þeim hörmungum sem ég hef gengið í gegnum eða ekki. Það er líka undir sjálfri mér komið hvort ég nýti þá reynslu á jákvæðan hátt fyrir sjálfa mig og aðra, eða ekki. Það er líka undir sjálfri mér komið hvort ég læt gerandann stjórna líðan minni það sem eftir er eða ekki.
Ég veit það vel að þetta er mjög viðkvæmur málaflokkur, og sitt sýnist hverjum. En þó er það svo í þessum málaflokki að það er auðvelt að sjá flísina í augum annarra, en koma ekki auga á bjálkann í sínu eigin. Og það er enn auðveldara að vera umburðarlyndur og fullur fyrirgefningar gagnvart gerendum, þegar maður hefur ekki persónulega reynslu af svona málum.
Ég hef svo sem ýjað að reynslu minni í þessum efnum hér áður. Hinsvegar hef ég aldrei tjáð mig skipulega eða á upplýsandi hátt um í hverju reynsla mín er fólgin. Og geri það ekki í þetta sinn. Ekki sjálfrar mín vegna, því ég á engin leyndarmál lengur - ég frelsaði þau öll úr bakpokanum þegar ég sagði skilið við Bakkus um árið - en ég er ekki sú eina sem málið snertir. Það kemur að því að ég dúndra allri sóðalegri og sorglegri sögunni hér inn, en það er þó ekki alveg tímabært enn sem komið er.
Látum nægja að segja hér, eins og ég hef sagt annars staðar á blogginu, að ég er ein af þessum konum sem bjó með dæmdum barnaníðing, án þess að hafa vitneskju um fortíð hans. Ég átti barn fyrir - þennan frábæra frumburð minn sem ég hef minnst á hér áður - og eignaðist með níðingnum annað barn - örverpið mitt sem ég elska takmarkalaust - áður en ég komst að hinu sanna um níðinginn. Fyrir ykkur sem eruð að deyja úr forvitni, þá heitir hann Sveinn Ríkarðsson, og býr í Hafnarfirði, gegnt Suðurbæjarlauginni, þar sem skólabörnin hér í bæ fara í skólasund.
Kassastaflarnir af gögnum sem orðið hafa til eftir þessa stuttu sambúð eru að verða óteljandi. Búin að gefast upp á að reyna að koma dóti í geymsluna hjá mér! Og þó að liðin séu allnokkur ár síðan, verð ég enn reið þegar ég les um "þessa menn" sem gera saklausum litlum börnum svona skelfilega hluti. Hins vegar hef ég líka haft að leiðarljósi gegnum edrúmennsku mína, að "það er útaf dottlu" sem svona hlutir eru lagðir á mann, og oft fæ ég ekki að vita hvers vegna fyrr en löngu löngu síðar hver ástæðan er. Ég er enn að velta fyrir mér hver ástæðan á bak við þessa reynslu sé, en ég trúi því statt og stöðugt að ég komist að því einn góðan veðurdag. Kannski verður reynsla mín til þess að einhver annar/önnur þurfi ekki að ganga í gegnum svipaða hluti, og kannski verður mín reynsla til þess að hjálpa einhverjum öðrum að vinna sig í gegnum svipaða reynslu.
Mér var líka kennt að reiði væri munaður sem ég hefði ekki efni á. Þess vegna hef ég reynt að vinna úr reiðinni innra með sjálfri mér, og ekki útvarpa henni hverjum sem heyra vill. Það getur verið snúið stundum, og er mér endalaust verkefni í æðruleysi og fyrirgefningu.
Ekki misskilja mig, mér er ekki fyrirgefning í huga þegar að níðingnum kemur. Hann á allt illt skilið sem eltir hann uppi, en það er bara ekki mitt að veita honum það! Hins vegar hef ég þurft að fyrirgefa sjálfri mér og frumburðinum mest, og það er vinna sem tekur trúlega engan endi. Enda er heimilislífið hér litað af tilveru níðingsins, og verður það sjálfsagt alla tíð. En Halla Rut kom inn á ansi góðan punkt þegar hún talaði um að rétt væri að taka rétt barnsins fram yfir rétt mannsins í svona málum. Það ER betra að einn saklaus maður sitji inni, heldur en að ein barnssál (tala nú ekki um margar) sé brotin og beygð eftir svona menn.
Svo mörg voru þau orð í þetta sinn! Held að ég sé að verða róleg aftur, eftir að hafa fokið upp við að lesa umræður um þessi mál á blogginu eftir erfitt skólaball. Reiðust verð ég þó yfir sýndardómum í þessum málaflokki!
Skyldi íslenskt þjóðfélag einhverntíma taka sig saman í andlitinu og dæma "þessa menn" útaf vellinum í eitt skipti fyrir öll? Ja, kona spyr sig....

Athugasemdir

1 Smámynd: pirrhringur
það er mjög gott sem Halla Rut hefur verið að gera og kommentin sem ég hef séð eftir þig eru bara snilld, sem og þessi pistill
pirrhringur, 16.5.2008 kl. 06:53
2 identicon
Exellent hjá þér darling....við verðum ekki svo auðveldlega brotnar þó við bognum af og til. 
Addý (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 15:25
3 identicon
´Veistu Berglind mín að þú ert bara frábær penni og þessi pistill þinn er bara góður og ég er 100 % sammála þér heillin mín.Vonandi gengur allt í haginn hjá þér og þínum.
Þyrfti að fara að drífa mig í kaffisopan hjá þér  ég er alltaf á leiðinni :)
Sejjjjjjjaaaaaaaa kveðja Íris G
Ps : ég gat ekki strokað út og sent þér mailið til baka,skil það bara ekki
Íris Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 10:21
4 Smámynd: Lovísa Sigmundsdóttir
Nauðsynlegt að halda þessari umræðu áfram.
www.birtabeib.blog.is
Lovísa Sigmundsdóttir, 17.5.2008 kl. 12:45
5 Smámynd: Haraldur Davíðsson
Það verður ekki af þér skafið Berglind. Það eru afskaplega fáir að ræða þessi mál á jafn opinskáan hátt og þú. Og ég verð að taka ofan hattinn fyrir þér. Persónulega vil ég vera harðari, en það er bara ég. Allt þetta tal um réttindi gerenda er ábyrgðarlaust hjal. Það er einfaldlega stórt gat í öryggisnetinu sem " kerfið " á að leggja til. Og á meðan eru myndbirtingar og opin umræða eina vopnið sem við höfum. Ef við ekki lögum kerfið, þá breytist ekki neitt. Vissulega eiga allir að njóta umsjár samfélagsins, en það eiga ekki allir að njóta vafans. FRIÐUR (Í sálinni)                                                    
Haraldur Davíðsson, 17.5.2008 kl. 23:55
6 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir
Þakka þér Haraldur, mér hefur nú reynst það best að kalla hlutina réttum nöfnum og vera ekki að fara í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan graut! Og mikið er ég sammála þér með þetta ábyrgðarlausa hjal! Fátt sem fer eins mikið í pirrurnar á mér og tal um að gera þessum mönnum/konum kleift að eiga eðlilegt líf! Þau eru löngu búin að fyrirgera öllum rétti til eins eða neins! Papillion kemur upp í hugann á mér, og við eigum fjandakornið nóg af einhverjum sultarskerjum hringinn í kringum landið, þar sem hægt væri að leyfa þessum andskotans aumingjum að svelta í hel í rólegheitum á meðan þau hugsa um gjörðir sínar og afleiðingar þeirra! En hey, það er bara mín skoðun! Engin grimmd í mér, er það? Bara auga fyrir auga, og svo framvegis! Mér finnst líka að allir ættu að geta hringt og fengið upplýsingar um kynferðisbrot úr sakaskrá, hjá hverjum sem er. Finnst það kannski virka svolítið "turn-off" ef ég er komin í samband, og bið manninn að leggja fram sakavottorð, af því ég lenti í barnaníðing einu sinni! Lágmarksmannréttindi að mínu mati! En sennilega fæ ég þau seint í gegn, nema ég komist á þing, og lemji þetta í gegn með minni alkunnu frekju. Og eins og ég er nú opinská og kjaftfor (það segja allavega þeir sem þekkja mig) kemst ég nú seint á þing! En myndbirtingar á hiklaust að leyfa - af DÆMDUM níðingum!
Bestu kveðjur!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 18.5.2008 kl. 00:04
7 identicon
Þú mátt vita það Berglind að þú ert ein sterkasta manneskja sem ég hef kynnst. Þú ert skynsöm og réttlát og full af visku og kærleik.  Og það sem börnin þín hafa þurft að þola hefur þú greinilega kennt þeim að takast á við og hjálpað þeim í gegnum erfiðleikana því betra samband móður og drengjanna hennar er erfitt að finna.  Það sem við eigum sameiginlegt hefur þú líka hjálpað mér með, meira en þú gerir þér grein fyrir. Þurfum að ræða saman yfir kaffibolla við tækifæri, you and me babe
Sylvía (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 09:44

1 comment:

  1. edast ekkert um sannleiksgildið hjá þér.. en það væri frábært ef þú gætir látið fylgja einhver gögn til að sanna sekt þessa manns.. dóm eða eitthvað haldbært..

    ReplyDelete