Friday, February 19, 2010

Á skjálftavaktinni.....

....eða kannski bara ekki.....
Finnst þessi yfirgengilega umfjöllun um brotið leirtau SOLDIÐ ýkt! Sorrý. Var að lesa þetta blogg hér, og get bara ekki verið meira sammála. Á meðan við erum að drukkna í fréttum um brotið leirtau, ónýta flatskjái, og bókahillur sem fóru á hliðina heyrist lítið sem ekkert um NÁTTÚRUHAMFARIRNAR í Kína, þar sem síðustu tölur herma að 80 ÞÚSUND MANNS eru talin af. Eigum við að koma okkur niður á jörðina kannski?
Ekki misskilja mig: Ég hef fullan skilning á því að það er ekki gaman að koma að heimilinu sínu í rúst, og eiga ekki einn heilan disk til að borða af, eða bolla til að drekka kaffið úr. Og ég af öllum skil tilfinningalegt verðmæti hluta! Believe you me, annar eins safnari og ég hef sko meira en FULLAN skilning á því! En hamfarir verða þetta seint taldar í mínum kokkabókum!  Hamfarir eru þegar tugir þúsunda látast, og enn fleiri látast í kjölfarið vegna skorts á mat, vatni og grunn-nauðsynjum. Tábrot og skrámur eru ekki þar talin með!
Er ég ein af fáum að finnast þetta full-amerísk móðursýki? Ja, kona spyr sig....

mbl.is Tveir eftirskjálftar um 4 að stærð
Fyrst birt 31.5.2008 | 04:58

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson
....with cream and sugar on top....
Þetta heitir MEÐVIRKNI........   með-skjálftavirkni..
Haraldur Davíðsson, 31.5.2008 kl. 05:33
2 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir
Nákvæmlega!!!!! Ótrúlegt alveg! Gott að sjá að ég skuli ekki vera ein um að vera á fótum á þessum tíma sólarhringsins!!!!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 31.5.2008 kl. 05:47
3 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson
Ágæta Berglind
alveg augljóst að þú varst ekki hérna stödd.  Ég bý hinsvegar á Eyrarbakka og ég get fullvissað þig að málið snýst ekki (EKKI) um brotna bollastellið frá Stínu frænku heldur um fjölskyldur sem sátu grátandi við vegakantinn vegna þess að þau þorðu ekki aftur inn á heimilið sitt.  Málið snýst um heimili sem voru lögð í rúst af ógurlegum krafti sem fékk fólk til að endurskoða líf sitt enda voru jarðneskar eigur út um allt.  Við hjónin vorum að hugga fólk sem hafði hrunið í gegn um glugga, blóðugt og beinbrotið, stjarft í sjokki eða hágrátandi.  Eldhús þar sem ískápurinn hafði opnast og hvolfst ofan á eldavélina og allir eftir skáparnir brotnað af ofan á alltsaman.  Klósettin sem höfðu brotnað og veggir laskast -að sumu leiti hrunið.
Og þú Berglind ætlar að segja þessu fólki að líta til Kína? Að kona á blogginu hafi metið þeirra ófarnað sem ónógan til að kallast hamfarir?  Meðvirkni, Haraldur?  Er harðúð hjartna ykkar ekki farin að blinda ykkur eilítið sýn?
Ragnar Kristján Gestsson, 31.5.2008 kl. 08:16
4 Smámynd: Rannveig H
Hjartanlega sammála Meðvirkni með skjálftavirkni  það er slveg BRILJANT
Rannveig H, 31.5.2008 kl. 08:23
5 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson
´
Ragnar Kristján Gestsson.  Það var 2ja ára drengur ásamt afa sínum sem vað fyrir því að brenna lífshættulega þegar gassprenging varð í húsbíl.  En þetta gerðist í Grindavík, og kom jarðskjálftanum ekkert við.  Væri ekki möguleiki að fá að láta draga húsvagninn til Selfoss til að gera þetta umtalverðara og umtalið um ykkur meira sem töpuðuð innanstokksmunum  og sáuð bílana hristast á bílastæðunum, svo betur verði tekið eftir ykkur.  Barnið sem brenndist liggur núna milli heims og helju á sjúkrahúsi og það er varla minnst á það, því það gerðist ekki í jarðskjálftanum.  - Aumingja þú -.
Kær kveðja
Björn bóndi.
Sigurbjörn Friðriksson, 31.5.2008 kl. 13:07
6 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson
Ágæti Björn.
Af hverju heldur þú að þetta snúist um mig?  Eða um að komast að í fjölmiðlum?  Þetta snýst um fólk, manneskjur og mig tekur jafn sárt til þessa litla drengs og allra hinna litlu drengja sem ég sá grátandi af hræðslu.  Það sem ég er hinsvegar að gagnrýna er að tilfinningadeyfðin er orðin svo svakaleg að ef ekki  "tugir þúsunda látast, og enn fleiri látast í kjölfarið vegna skorts á mat, vatni og grunn-nauðsynjum" þá tekur því ekki að fjalla um það.  Og það í heimalandi okkar.  Ef þið fjölmiðlasoltni heimur fáið ekki ykkar skammt af blóði þá er kvartað og kveinað yfir hve hörmungarnar eru orðnar slappar - í samanburði við hinar og þessar þar sem ÞÓ þetta og hitt gerðist.  Það er nefninlega svolítill munur á því að hafa fólki að moka út lífi sínu í kerru útá hauga, og að lesa um það í 24Stundum.  Heldurðu að barninu liði betur ef þú gætir lesið í smáatriðum um sár þess í Mogganum?  Hvern varstu að hugsa um þá?
Ragnar Kristján Gestsson, 31.5.2008 kl. 17:47
7 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir
Var að fatta að þú ert sú sem sendir mér sniglapóst hehehehehe.Svolítið langur fattari hjá sumum
Birna Dis Vilbertsdóttir, 31.5.2008 kl. 19:01
8 Smámynd: Haraldur Davíðsson
Ragnar minn, viltu nú ekki aðeins hætta að vera reiður við okkur sem gleðjumst yfir því að ekki fór verr. Það er ekki hægt að kalla þennan skjálfta meiriháttar hamfarir, enda varð ekkert MANNTJÓN, þú ættir að skynja hvernig slíkar yfirlýsingar horfa við t.d fórnarlömbum snjóflóðanna í Súðavík og á Flateyri.
Það er ekkert annað en hræsni af fjölmiðlum og þér að vilja kalla þetta stórum nöfnum.
Auðvitað finnum við til með þeim sem urðu fyrir EIGNATJÓNI, en eignum blæðir ekki og þær fást endunýjaðar.það má líka benda á að það er hluti af lífinu hér að búast við jarðhræringum svo þetta er nú ekkert nýtt að jörðin skjálfi svolítið.......og það þýðir ekkert að væla yfir eignatjóni þegar ekkert manntjón verður.
FRIÐUR ( fæst með jákvæðni og húmor )
Haraldur Davíðsson, 31.5.2008 kl. 19:40
9 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson
Bíddu hægur Haraldur, ég get fallist á að síðustu færslu hafi ég verið reiður og hefði kannski skrifað hana öðruvísi núna.  En ég get ekki fallist á að það sé hræsni hjá mér að segja frá hlutunum eins og þeir komu mér fyrir sjónir sl. fimmtudag.  Þér að segja hef ég lítið fylgst með fjölmiðlum nema sjónvarpsfréttum og get því lítið dæmt um þeirra hlut en þú verður að útskýra fyrir mér í hverju þú sérð hræsni???.
Ég held að það sem hafi farið verst með fólkið sem ég talaði við var óttinn, þessi nagandi kvíði yfir því hvað gerðist næst - hvað með í nótt eða á morgun?  Auðvitað beittu allir þessu sljóa vopni: jákvæðni og húmor en það virkar bara stutt þegar þú veist ekki hvað verður um börnin þín.
Og síðan finnst mér það skammgóður vermir að vita að aðrir hafi það enn skitnar, Egill sagði reyndar að svo skyldi böl bæta að bíða annað meira - ekki þó að heyra um annað meira.
Ragnar Kristján Gestsson, 31.5.2008 kl. 21:12
10 Smámynd: Haraldur Davíðsson
....ef þið fjölmiðlasoltni heimur fáið ekki ykkar skammt af blóði.....Mig vantar ekki blóð og frábið mig slíkum yfirlýsingum, þakka þér fyrir.
Er þetta ekki hræsni.......?
Ég er einmitt að setja út á fjölmiðla.......og þennan ofsa í meðskjálftavirkninni.
Annars get ég ekki vorkennt eignum og  þeim sem töpuðu eignum, svo glaður er ég yfir því að enginn sála tapaði lífinu.
Haraldur Davíðsson, 1.6.2008 kl. 11:46
11 Smámynd: Beturvitringur
Sjáum nú tvær hliðar (a.m.k.)
Mannskæðar hörmungar á hamfarasvæðum í Kína og víðar eru réttilega ekki "sambærilegar" við Fyrir-austan-Fjall-skjálftann...
EN Hver og einn á sinn eigin raunveruleika; varla minnkar sársauki í svöðusári þótt maður frétti af e-m öðrum sem meitt hefur sig "miklu meira"
Sem sagt, lít á allt ofangreint sem réttmætt, þyrfti bara aðeins að krækja það saman
Beturvitringur, 2.6.2008 kl. 03:52

No comments:

Post a Comment