...í berlendi, sem fara stórum í skjóli nafnleysis eftir síðustu barnaverndarfærslu mína og viðtalið í Vikunni. Bara gaman að því að vera aðalumræðuefnið þar! Hér má skoða þessa frábæru umræðu, hvet sem flesta til að skoða þetta og kommenta ef þið eruð skráðir notendur á þessari síðu!
Hér koma tvær færslur úr þessari umræðu:
Við svona mannvitsbrekkur hef ég bara eitt að segja: Ég er í símaskránni, endilega komið í kaffi til mín, og við skulum ræða þetta augliti til auglits, án þess að fela okkur bak við nafnleysi. Ég skal sýna ykkur ÖLL gögnin í málinu, þar á meðal svarbréfin frá Barnaverndarstofu, sem er (eins og er réttilega bent á í þessari umræðu) eftirlitsaðili með barnaverndarnefndum landsins. Það sem ekki kemur fram er hins vegar öllu verra: Barnaverndarstofa hefur engin úrræði önnur en skriflega áminningu til einstakra nefnda eða einstaklinga innan þeirra. ÞAÐ er vandamálið í hnotskurn.
Ég vil líka benda þessum blessuðu berlendingum á það, að ég er EKKI AÐ FELA MIG BAK VIÐ NAFNLEYSI! Allt sem ég læt frá mér er undir fullu nafni, og ég get staðið við ALLT sem ég skrifa, og líka það sem kom fram í viðtalinu margumtalaða í Vikunni. Ég get meira að segja staðfest að myndin ER af mér, þó ég sé með varalit og falin bak við blúndu!!!!
Skil annars ekki svona storma í vatnsglösum, en það er svo aftur allt annað mál. Enda var mér bent á þessa umræðu á berlendi eftir krókaleiðum, því ég fer aldrei niður á þetta plan sjálf, nema að gefnu tilefni. Finnst bara bloggið miklu skemmtilegra sko, og þá ber nú moggabloggið af, þrátt fyrir ritskoðanir og þess háttar bull. Hef reyndar ekki fengið að kenna á því sjálf, ennþá að minnsta kosti.
Skyldi þessi færsla verða til þess? Ja, kona spyr sig....
Fyrst birt 25.8.2008 | 00:40 Hér koma tvær færslur úr þessari umræðu:
Ozzy | 17. ágúst '08, kl: 00:43:33
SV: Blogg, lesið
Stelpur
ætla að segja eitt, og ekki aftur
þið eigið ekki að trúa öllu sem fólk segir og als ekki trúa þessu viðtali blint
Ozzy | 17. ágúst '08, kl: 00:47:03SV: Blogg, lesið
ég þekki til hennar og það er ekki rétt að hún sé að segja sannleikann í hverju einasta orði
Við svona mannvitsbrekkur hef ég bara eitt að segja: Ég er í símaskránni, endilega komið í kaffi til mín, og við skulum ræða þetta augliti til auglits, án þess að fela okkur bak við nafnleysi. Ég skal sýna ykkur ÖLL gögnin í málinu, þar á meðal svarbréfin frá Barnaverndarstofu, sem er (eins og er réttilega bent á í þessari umræðu) eftirlitsaðili með barnaverndarnefndum landsins. Það sem ekki kemur fram er hins vegar öllu verra: Barnaverndarstofa hefur engin úrræði önnur en skriflega áminningu til einstakra nefnda eða einstaklinga innan þeirra. ÞAÐ er vandamálið í hnotskurn.
Ég vil líka benda þessum blessuðu berlendingum á það, að ég er EKKI AÐ FELA MIG BAK VIÐ NAFNLEYSI! Allt sem ég læt frá mér er undir fullu nafni, og ég get staðið við ALLT sem ég skrifa, og líka það sem kom fram í viðtalinu margumtalaða í Vikunni. Ég get meira að segja staðfest að myndin ER af mér, þó ég sé með varalit og falin bak við blúndu!!!!
Skil annars ekki svona storma í vatnsglösum, en það er svo aftur allt annað mál. Enda var mér bent á þessa umræðu á berlendi eftir krókaleiðum, því ég fer aldrei niður á þetta plan sjálf, nema að gefnu tilefni. Finnst bara bloggið miklu skemmtilegra sko, og þá ber nú moggabloggið af, þrátt fyrir ritskoðanir og þess háttar bull. Hef reyndar ekki fengið að kenna á því sjálf, ennþá að minnsta kosti.
Skyldi þessi færsla verða til þess? Ja, kona spyr sig....
Athugasemdir
Sannarlega fara þar sannkristnir í samviskulausu grjótkasti og þykir þar hver merkilegastur sem hefur dónalegustu svörin bak við nikkið sitt.
Svo ekki sé nú talað um berlendingaraldurstengda virðingu.
Ég vitna þá sérstaklega í Mengelludæmið sem ég fylgdist dálítið með og hafði sérlega gaman að....svo varð úr þessu allt fútt og ég steingleymdi að þetta lendi væri enn til....takk svo mikið elskan mín fyrir að endurvekja hjá mér gamla þörf til að lesa þennan innihaldsríka vef á lendinu góða!
Svefnpillur næturinnar eru á þína ábyrgð mín kæra og urrrrr á þig fyrir vikið!
Heyrðu og svo áttu "skíló" með "togara".... geturðu sent mér "skíló" til baka með Faðir vorinu?
Farðu vel með þig elsku Fysið mitt og ekki hlusta á þetta bull....þú ert flottust!
Já, og Ozzy, ef þú villist hér inn þá hef ég þekkt þessa "togarafrú" í fleiri ár en þú og hér nýtur þú ekki þeirrar virðingar að geta þrætt við mig um hana eða hennar málefni.
Kveðja Inda
Ps ...takk fyrir að stytta mér stundirnar á næturvöktunum :) Meira að segja Magga er að svíkja mig :/