Friday, February 19, 2010

... enn af kynferðisbrotum gegn börnum ....

... á litla landinu fagra. Alveg merkilegt að faraldurinn sé enn að færast í aukana.
Hér er linkur á frétt af mbl.is, en einhverra hluta vegna hafa þeir ekki leyft bloggurum landsins að tengja við þessa frétt. Skil nú ekki afhverju, nema þetta sé áframhald á ritskoðunartöktum Hádegismóamanna, þar sem því er ritstýrt hverjir fá að blogga við hvaða fréttir hverju sinni.
Málið er sorglegt, þarna er á ferðinni háaldraður maður sem hefur dundað sér við að misnota barnabörnin sín, án þess að nokkur tæki eftir. Það sem stingur mig hinsvegar mest í fréttinni er að pabbi stúlkunnar, segir að við athugun á málinu hafi rifjast upp fyrir honum að hafa séð afann sýna ósæmilegt athæfi í garð einnar stúlkunnar í sumarbústað. 
Gott og blessað að maðurinn skuli fá fjögurra ára dóm, og sé gert að greiða fórnarlambinu miskabæðtur, þó bætur megi sín lítils á vogarskálunum, þegar sálin manns er í molum. Mér finnst hinsvegar alveg gersamlega fáránlegt að hár aldur sé talinn manninum til refsilækkunar. Alveg eins og mér finnst fáránlegt að telja afbrotamönnum til refsilækkunar að þeir séu rauðhærðir og því í minnihluta í þjóðfélaginu. Alveg jafn absúrd dæmi!
Sorglegar fréttir, sorgleg viðbrögð hjá Moggamönnum að leyfa ekki tengingu við frétt, og sorglegir dómar í þessum málaflokki, þó þessi dómur sé vissulega spor í rétta átt. Ekki alls fyrir löngu hefði maðurinn fengið 3-4 mánaða dóm, og gert að borga þolandanum 150-200 þúsund í miskabætur.
Er þessi málaflokkur ekkert á batavegi í kerfinu eða þjóðfélaginu, þrátt fyrir mjög aukna umræðu? Ja, kona spyr sig.....

Fyrst birt 12.9.2008 | 18:23


Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson
Undarleg taktík hjá MBL.....hvað er verið að verja??
Haraldur Davíðsson, 13.9.2008 kl. 12:57
2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson
Berglind (N)anna;  Þakka þér að vekja máls á þessari pínu Mbl.is að loka fyrir blogg-athugasemdir við þessa frétt.  Ég seni eins og Haraldur Davíðsson, hér að ofan, "MBL.....hvað er verið að verja?"
Mér finnst það alvarlegast að fyrirngarfrestur skuli hefjast frá og með brotadegi.  Hvernig á barn að kæra?  Oft á tíðum trúa foreldrar ekki börnum sínum - það er staðreynd.  Einnig að hylma foreldrar á stundum yfir fjölskylduglæp, "til að bjarga heiðri fjölskyldunnar" eins og þetta séu einhverjir "Talíbanar" eða álíka.  Einstaklingar eru börn til 18 ára aldurs núna (var 16 ára þegar ég var og hét og tle það vitleysu að hafa hækkað aldurinn).  Ég tel að við kynferðisbrot og önnur brot á börnum skuli fyrningarfrestur ekki hefjast fyrr en einstaklingurinn er orðinn fullra 18 ára.  Annað er ekki rétt. 
Frjálsir bloggarar;  Mér datt í hug að stigna upp á því við þá sem ofbýður ritskoðun á borð við Morgunblaðið, Sovíetríkin, Kúbu, Kína o. fl., að við boðum “fagnaðarerindið” um frjálsa bloggsíðu, með kveðjum okkar;Kær kveðja, Björn bóndiïJð Munið bloggsíðuna;  http://blekpenni.com
Sigurbjörn Friðriksson, 14.9.2008 kl. 17:46
3 Smámynd: pirrhringur
Það er ógeðslegt að þeir brjóti gegn sínum heittelskuðu "fordæmum" og meti aldur til refsilækkunar. Ég efast stórlega um að það gæti komið fyrir í öðrum glæpum en alltaf þegar um svona mál er að ræða er sýnd sérstök alúð og miskunn. Það verður bara að segja hlutina einsog er (þótt það breyti líklega engu - en ég sem þegn í þessu landi verð að fá útrás fyrir skömmina sem ég finn fyrir einhvernvegin) Líklega hefur þessi náungi gert margfaldan skaða af sér um ævina umfram þann sem vita er um
Ritskoðun moggans er svo annar handleggur
pirrhringur, 14.9.2008 kl. 21:49

No comments:

Post a Comment