Thursday, February 18, 2010

Mikið er gott að geðsvið LSH skuli loks opnað fyrir skjólstæðinga Byrgisins.

Það er af sem áður var, að fólki var vísað unnvörpum út af geðsviði LSH og sagt að hringja bara í Byrgið ef það þyrfti að komast í meðferð!Eða hvað??????
Ég er ein af þeim sem hef það á samviskunni að hafa farið með veikan einstakling í Byrgið eftir ótrúlegar móttökur á geðsviðinu. Ótrúlegar segi ég og stend við það. Að vísu var þessi einstaklingur karlmaður, kannski sem betur fer, allavega hefur ekkert komið upp á yfirborðið um kynferðislega misbeitingu á karlmönnum í Byrginu ennþá.
Það er ákveðin lífsreynsla að ganga inn á bráðamóttöku geðsviðs, með einstakling sem er kominn að því að fremja sjálfsvíg í kjölfar mikillar fíkniefnaneyslu, og fá þessar móttökur sem við fengum. Einstaklingurinn sem ég kom með inn á bráðamóttöku var ungur karlmaður um tvítugt, við skulum kalla hann Jón. Hann leitaði til mín gegnum fjölskyldumeðlim, þar sem hann vissi að ég þekkti til kerfisins, bæði geðheilbrigðiskerfisins sem og áfengismeðferðarkerfisins. Ég tel mér það bæði ljúft og skyld að aðstoða fólk þegar það leitar til mín, og gerði það í þessu tilviki. Við komum inn á bráðamóttöku, þar sem okkur var vísað í vægast sagt óvistlega biðstofu (ég hvet alla sem ekki hafa komið í geðdeildarbygginguna að fara í skoðunarferð og skoða þessa "biðstofu" sem er strax til hægri þegar komið er inn í bygginguna) og bíða þar eftir viðtali við lækni. Jón bað mig í lengstu lög að fylgja sér í viðtalið við lækninn, þar sem hann treysti sér engan veginn einn. Ég taldi það sjálfsagt mál. Eftir tæplega tveggja tíma bið, var loks kallað á Jón, og ég fylgdi honum inn á gang í viðtalsherbergið. Þar tóku á móti okkur geðlæknir og geðhjúkrunarfræðingur, og um leið og við gengum inn, brást geðlæknirinn hinn versti við og rak mig fram á mjög svo ruddalegan hátt. Ég benti honum kurteislega á að ég væri þarna að ósk Jóns, en blessaður læknirinn (hef reyndar velt því fyrir mér síðan hvaða geðraskanir hann eigi við að stríða!) brást ókvæða við, og sagði að sér stæði alveg á sama hvað Jón vildi eða vildi ekki, annað hvort hypjaði ég mig út, eða hann hefði ekkert við Jón að ræða. Aumingja Jón, niðurbrotinn eins og hann var á þessari stundu, að sálast úr fráhvörfum eftir neyslu, og auk þess kominn á geðdeild í viðtal (sem getur reynst hverjum sem er skelfileg lífsreynsla ein og sér) sat eins og illa gerður hlutur, horfði til skiptis á mig og gólfið, og muldraði loks: Viltu kannski bíða eftir mér frammi? Ég sagði það sjálfsagt mál, og gekk fram í biðstofuna. Innan við korteri síðar, kom Jón fram, og sagði brostinni röddu: Þeir vilja ekkert gera fyrir mig hér.
Ég stökk í afgreiðsluna, og spurði hverju það sætti að ekki ætti að gera neitt fyrir Jón, sem augljóslega var mjög illa stemmdur, og talaði um að fremja sjálfsvíg, og fékk þau svör að hann væri ekki nægilega veikur á geði til að leggja hann inn, Ef hann teldi sig þurfa á innlögn að halda einhversstaðar, gætum við prufað að hringja í Byrgið!
Ég tók upp símann og hringdi nokkur símtöl, meðal annars til að kippa í þá spotta sem ég gat, til að koma Jóni inn á geðdeild, en ekkert gekk. Að lokum hringdi ég í Byrgið, sem tók við Jóni umhendis, ekkert vandamál.
Alla leiðina austur á Efri-Brú talaði Jón um hvað hann hefði gert rangt úr því geðdeild tók ekki við honum, hvað þetta væru erfið spor, og hva lífið væri tilgangslaust og erfitt. Síðan hef ég talað við Jón tvisvar eða þrisvar, og fæ reglulega af honum fréttir, og síðast þegar ég vissi gekk honum allt í haginn.
Sumsé, gott og blessað að geðsvið skuli loks opna fyrir þessa einstaklinga, eða er það staðan??
Í fréttum kvöldsins var talað um að ungri stúlku, sem var skjólstæðingur Byrgisins og fórnarlamb Guðmundar, hefði verið vísað frá geðsviðinu í dag eða í gær!!!!!!!!!!!!
Hvað er að þegar ekkert er að og allt er í lagi????????
Er ekki kominn tími til að taka aðeins til á geðsviði, og skoða vandlega þessi vinnubrögð sem viðhöfð eru á bráðamóttökunni??? Skoða þarf vandlega hverjir eru settir í að ræða við fárveikt fólk, þegar það skríður inn um dyrnar á Hringbrautinni, niðurbrotið og illa statt. Það er alveg ljóst að það þarf ekki móttökurnar sem Jón fékk í hittifyrra, eða svörin sem unga stúlkan fékk í dag eða í gær!

Fyrst birt 12.2.2007 | 18:42

No comments:

Post a Comment