Thursday, February 18, 2010

Loksins sönnun fyrir því að Freud hafi verið snarbilaður!

Það er merkileg staðreynd í heimi geðveikinnar, að kenningar Freud séu enn leiðandi í meðferð geðklofa, í ljósi þess að Freud var logandi hræddur við alla sem voru geðveikir,  einkum og sér í lagi þá sem þjáðust af geðklofa. Ekki er til ein einasta skráð heimild um að hann hafi nokkurn tímann hitt einstakling sem þjáðist af geðklofa. Hitt er vitað, að hann var forfallinn kókaín-fíkill, sem girntist móður sína.Þessi rannsókn sem fjallað er um í þessari frétt, sýnir einnig svo ekki verður um villst að það er eitthvað stórkostlega mikið að í sálarlífi fólks sem girnist börn. Fólk, segi ég, vegna þess að til eru dæmi um konur sem girnast börn, þó þær séu langt um færri hlutfallslega en karlmenn.

Síðasta bloggfærsla mín hefur vakið sterk viðbrögð, einkum þó frá fólki sem hefur ekki reynsluna af því að sjá börnin sín verða fyrir barðinu á þessum mönnum. Ég hef þá reynslu, og hún er ekki skemmtileg, síður en svo. Í ofanálag við að berjast við níðinginn sjálfan, þarf að berjast við afleiðingarnar, sem eru daglegur gestur á heimilinu. Þar að auki þarf að fást við félagsmálayfirvöld, barnaverndarnefndir og svo mætti lengi telja. Nú þykist ég vita að einhverjir hristi hausinn þarna úti, og skilji ekki hvern fjandann ég á við.
Í því máli sem snertir eitt barnanna minna, þurfti ég fyrst að slást við barnaverndaryfirvöld, bæði á Húsavík, í Kópavogi, á Álftanesi og loks í Hafnarfirði, því níðingurinn var nógu klókur til að kæra mig fyrir að hafa misnotað son minn, áður en ég hafði tækifæri til að kæra hann. Hvað gerðu barnaverndaryfirvöld? Jú, þrátt fyrir að maðurinn væri dæmdur fyrir að misnota 9 ára stúlku, verulega þroskahefta, sem einnig var heimagangur á heimili hans, ákvað barnaverndarnefnd Suður - Þingeyjarsýslu, undir styrkri leiðsögn Soffíu Gísladóttur, þáverandi félagsmálastjóra, ákvað, EFTIR AÐ HAFA KYNNT NEFNDARMÖNNUM SEM EKKI VAR KUNNUGT UM MÁLIÐ, FORTÍÐ KÆRANDA, og þrátt fyrir allt ákveða að orð hans væru marktæk umfram mín.
Upp hófst mikið stríð við félagsmálayfirvöld S.-Þing og Kópavogs, þar sem ég hafði aðsetur á þessum tíma, og í kjölfarið félagsmálayfirvöld á Álftanesi með Sæmund  Hafsteinsson í fararbroddi. Því að sjálfsögðu var gengið út frá því að ÉG hefði misnotað barnið mitt - hvaða ástæðu átti níðingurinn að hafa fyrir því að ljúga þessu upp á mig????? Maður bara spyr - HMMMMMMMMM
Eftir margra ÁRA streð fékk ég loks GÓÐFÚSLEGT LEYFI til að fara með son minn í skýrslutöku í Barnahús. Konur þar á bæ voru ekkert nema yndislegheitin, og dásamlegt var að kynnast einhverju öðru viðmóti í þessu langa og stranga ferli en tortryggni og vantrúnaði. Síðan var komið að því að taka skýrslu af níðingnum. Hvar var hún tekin? Jú, austur á Litla-Hrauni, þar sem hann sat inni bæði fyrir að misnota börn fyrrum sambýliskonu sinnar, og fyrir eitt stærsta safn barna- og dýrakláms sem þá hafði fundist á Íslandi. Níðingurinn var spurður að því hvort eitthvað væri til í þessum ásökunum mínum og barnsins, og hann svaraði  (sem kemur ÖLLUM á óvart er það ekki) NEI, og þar með lauk því! Hann fær semsé aldrei dóm fyrir að hafa misnotað son minn, í þessu frábæra réttarkerfi sem við búum í.
Hér er rétt að það komi fram að ég bjó með manninum í rúmt ár, og eignaðist með honum yndislegan son, sem var kornabarn þegar ég yfirgaf Húsavík.
Enn þann dag í dag leitast níðingurinn við að vera mér til almenns ama, svo sem með því að fara fram á umgengni við þennan son, án þess að hann sýni nokkurn áhuga annan, en fyrst og fremst að valda mér ama. Öllu verra er, að hann hefur setið fyrir þeim syni mínum sem hann misnotaði, og til að bæta gráu ofan á svart, þá býr hann gegnt Suðurbæjarsundlauginni í Hafnarfirði, þar sem börn eru megin-uppistaðan í gestum.
Hann hefur skilið eftir sig langa slóð eyðilagðra sála, nú síðast í Grafarvoginum.  En hann er bara lasinn á sálinni, er það ekki? Samkvæmt kenningum Freuds heitins, er hann bara nokkuð EÐLILEGUR!
Í kommentum á fyrri færslu, hefur fólk talað um að það myndi trúlega taka fram haglarann ef einhver kæmi nálægt þeirra eigin börnum. Ég valdi að gera það ekki. Mér fannst - og finnst enn - að með því að fara niður á sama plan og hann - sé ég engu betri manneskja.
 Það var nú ekki ætlunin að rausa um þetta mál hér sem slíkt, ég bíð eftir blaðamanni til að fara ofan í saumana á vanköntum félags- og barnaverndaryfirvalda í kringum þetta mál, eins og vafalaust hundruðir ef ekki þúsundir annarra slíkra mála. Sé einhver rannsóknarblaðamaðurinn þarna úti tilbúinn til, skal ég með glöðu geði setjast niður með honum og fara yfir gang mála.
Tilgangurinn var meðal annars sá að benda fólki á, að það er gott og blessað að hugsa svona vel til þessarra manna (og kvenna) svo lengi sem það hefur ekki sjálft reynsluna. En staðreyndin er hins vegar sú, að ef við byggjum við réttarkerfi sem tæki á þessu fólki, eins og siðmenntaðar þjóðir gera, hefði sonur minn aldrei verið misnotaður, að minnsta kosti ekki af þessum manni, því hann sæti enn bak við lás og slá og rotnaði í rólegheitum, fyrir að hafa misnotað stúlkugreyið um árið.
Hugsið ykkur því tvisvar, og jafnvel þrisvar um, áður en þið farið að tala um mannúðlega meðferð á þessum mönnum. Barnið þitt eða barnabarn gæti verið næsta fórnarlamb einhvers þeirra, næst þegar einn þeirra kemur af Hrauninu eftir 4 mánaða dóminn sem hann fékk síðast, dóminn sem var kannski sá fimmti eða sjötti.  Þegar þú hefur gert þér þessa atburðarás í hugarlund, skaltu svo svara heiðarlega þeirri spurningu hvort þessir menn eigi RÉTT á mannúðlegri meðferð, meðferðarúrræðum og því að lifa í mannanna samfélagi innan um börnin okkar!
Talaðu svo við mig um dómhörku!

mbl.is Andúð á sifjaspellum ekki einungis samfélagsleg
Fyrst birt 18.2.2007 | 01:16

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.
Ég tek ofan hattinn fyrir þér Berglind.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 18.2.2007 kl. 01:31
2 identicon
Ljótt mál. Ég vona að þessi maður verði vistaður á viðeigandi stofnun áður en hann gerir meira af sér.
Jón Frímann (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 02:44
3 identicon
*las ekki
 þó svo að vísindamenn komi fram með kenningar þá eru þetta ekki fullyrðingar..
Benni (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 17:40
4 Smámynd: pirrhringur
ég þakka þér mikið fyrir að hafa skrifað þetta, maður er ríkari eftir þessar upplýsingar þótt þetta sé mjög sorglegt og ömurlegt að svona sé sannleikurinn og ég er sammála  þér um mjög margt annað sem þú hefur skrifað hér í öðrum færslum - en - ég er líka Freudisti og tek afar nærri mér ef að Freud er kennt um þetta. Hann skrifaði mikið og sumt hef ég lesið og hann bjó greinilega yfir manngæsku. Hann ól upp dóttir sem var heilbrigð og góð kona og ég finn ekkert perralegt í hans boðskap, nema síður sé. Það voru bara svo óheilbrigðir hlutir að gerast í geðlækningum á hans árum og á tímabili var hann jú vissulega bara dópisti! en hann komst yfir það. Ég fann mig eitthvað knúna til þess að segja frá þessu, vonandi er það í lagi. Jæja, ég bið þá að heilsa 
pirrhringur, 18.2.2007 kl. 18:41
5 Smámynd: pirrhringur
og ég veit reyndar ekkert hvort að geðlækningar hafi í raun eitthvað skánað síðan á tímum Freuds, ég veit bara að hann er hataður í HÍ
pirrhringur, 18.2.2007 kl. 18:42

No comments:

Post a Comment