Friday, February 19, 2010

.... detta mér nú allar dauðar...

... lýs úr hári!!!
Nú get ég ekki orða bundist, þrátt fyrir yfirþyrmandi bloggleti, og skort á tjáningarþörf! Ég var að skoða netið, svona eins og ég geri flesta daga, og brá mér inn á samkeppnisaðilann vísi.is, sem er ekki í frásögur færandi, nema kannski fyrir þær sakir einar að ég álpaðist til að kjósa í kjörkassanum. Þar er spurt hvort lögleiða eigi kannabisefni á Íslandi. Spurningin er svosem ekki út í hött, einkum í ljósi tíðinda síðustu daga og vikna, þar sem hver verksmiðjan á fætur annarri hefur verið upprætt, en það sem er tíðindavert við þessa könnun eru svörin. 60,8 prósent svarenda eru fylgjandi lögleiðingu kannabisefna!!!!!
Segi og skrifa SEXTÍU KOMMA ÁTTA PRÓSENT!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Er ekki allt í lagi með landann?????? Ég bara spyr???? Á sama tíma eru Hollendingar, sem hafa verið þjóða fremstir í lögleiðingu fíkniefna, að draga í land með frjálsræði þar í landi, og loka nú hverri hassbúllunni á fætur annarri, af fenginni reynslu!
Ég hef því miður, eins og margir aðrir, ekki bara reynt þetta á eigin skinni, heldur líka séð afleiðingarnar á börnunum okkar, sem eiga að erfa land og þjóð. Sjálfsagt er hægt að halda því fram að fólk sem notar kannabisefni sé ekki eins ofbeldishneigt og aðrir fíkniefnaneytendur. Veit það alveg, enda eyddi ég æði mörgum stundum á sínum tíma í að segja "VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ´" og horfa á tónlistina flæða út úr hátölurunum, eða annað álíka fánýtt. Og meðan ég var útúrskökk, gat ég engan veginn alið upp barnið mitt, sinnt húsverkum, hvað þá farið í vinnu eða skóla, eða gert yfirhöfuð eitthvað sem vit var í! Og með síaukinni kannabisneyslu fór paranojan að aukast, ég þurfti meira og meira til að ná sömu vímunni, varð þyngri og þyngri andlega, og fór að þurfa eitthvað til að hressa mig við. Næsta rökrétta skref var því að fara í amfetamínneyslu.
Og ég er ekki ein um þessa reynslu. Því miður. Langt í frá.
Vítahringurinn var skelfilegur. Upp á spítti, niður á stuði. Meira og meira þurfti til að fara upp, og enn meira til að ná mér niður. Og þá var ég langt í frá eitthvað friðelskandi blómabarn!
Saga mín er ekki einstök. Og svona sögur hafa heyrst um allt þjóðfélagið í sívaxandi mæli síðustu tuttugu árin eða svo. Því spyr ég sjálfa mig hvað sé eiginlega að gerast í kollinum á þjóðinni ef henni finnst í lagi að lögleiða kannabisefni.
Við sem þjóð eigum í mesta basli með þau löglegu fíkniefni sem nú þegar eru á markaði, áfengi og tóbak. Þurfum við virkilega að bæta kannabis í safnið? Og ef við lögleiðum kannabis, hvað er þá langt í að við lögleiðum önnur fíkniefni? LSD, PCP, heróín, amfetamín, kókaín, alsælu, .................
Ég bara næ ekki upp í nefið á mér! Ræddi þetta í síma við fysið áðan. Báðar höfum við nú komið nálægt ungviðinu okkar á framhaldsskólaböllum, og ég segi nú bara við þá sem vilja lögleiða kannabis: Fáið að mæta á eitt eða tvö skólaböll, og sitja í sjúkragæslunni! Þar sjáum við allan nöturleikann sem fíkniefnin skapa. Fáið að fara inn á meðferðarstöðvarnar og sjá afleiðingarnar með berum augum. Talið við börnin sem fóru í neyslu, en náðu að snúa við blaðinu áður en of seint reyndist.
Ég á lítinn frænda, sem byrjaði að reykja tóbak. Áður en nokkur vissi, var hann farinn að reykja kannabis. Ekkert stórmál, því það er nú eiginlega ekki dóp, ha? Well, því miður, þá var það ekki nóg fyrir hann. Úr kannabis fór hann í "hörðu" efnin. Hann má þakka guði fyrir það að hafa komist út úr þessu heill á húfi. Sumir félagar hans gerðu það ekki. Fullt af mínum félögum gerðu það ekki heldur. Heldur ekki bróðir minn heitinn. ÞAÐ er nöturlegur sannleikurinn í málinu.
Hvað skyldu mörg ungmenni þurfa að deyja af völdum "mjúkra" fíkniefna eins og kannabis, til að við sem þjóð þurfum ekki að ræða lögleiðingu þeirra? Ja, kona spyr sig..... 

Fyrst birt 24.3.2009 | 01:41

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.
Hjartanlega sammála.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 24.3.2009 kl. 01:49
2 identicon
Við þurfum nú aðeins að ræða þetta elskan mín....og ekki afþví að við séum eitthvað ósammála....nei, heldur vegna þess að mér er heitt í hamsi og þér greinilega líka!
Hvað er málið....er fólk ekki að sjá hvaða vandamál fylgja lögleiðingu sem þessari og heldur fólk það virkilega að það sé einhver lausn fólgin í að lögleiða þetta ógeð??!! 
Ég spyr mig, sem uppalandi og þar með fyrirmynd góðra siða, hvernig mér sem uppalanda gengi nú að koma því inn í hausinn á börnunum mínum að þetta væri þeim ekki hollt, ef ríkið léti verða að því að lögleiða þetta.
Miðað við þessa könnun virðist þjóðfélagið allavega vera tilbúið að samþykkja enn eitt eitrið!
Get allavega sagt þér það af fyllstu alvöru....ég myndi hætta samstundis allri öryggisvörslu....býð sjálfri mér ekki upp á svona vinnu umhverfi, finnst nóg um ástandið eins og það er og ekkert að gert. Og þá er ég ekki endilega að tala um unglingana okkar....ástandið í miðbæ reykjavíkur um helgar talar sínu máli. Bætum við nokkrum tugum af hasshausum, reykjandi á götuhornum og þá þarf ekki að spyrja sig að því hvernig fer..ónei!
Já, elskan..nú erum við sko þokkalega sammála!!!!  Og svei mér, ef ég flyttist ekki bara af landi brott!
Ég skal alveg basla með landanum í efnahagsþrengingum og leggja á mig það sem til þarf....en lögleyðingu eiturlyfja læt ég ekki yfir mig né mína ganga. 
Krús og koss á þig elsku Fysið mitt..takk fyrir flotta bloggfærslu og það að vekja máls á þessu! 
Fysið (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 23:53
3 Smámynd: AceR
Rökvilla.
AceR, 28.3.2009 kl. 17:04
4 Smámynd: Sporðdrekinn
Innlits kvit
Sporðdrekinn, 30.3.2009 kl. 17:10
5 identicon
hahahahha þetta gamla fólk.. hvernig kann allt þetta gamla fólk á internetin? Gefum þessu 30 ár þá verða vindlaklúbbarnir sem stýra ríkinu núna bakvið lás og slá og internetin ónothæf form samskipta vegna nettenginga á aldraðaheimilum
benni (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 21:57
6 Smámynd: Páll Jónsson
Svo að þú ert á móti kannabisnotkun vegna þess að þú misnotaðir efnið? Það mætti banna flesta hluti með þeim rökum að einhver, einhvers staðar hefði einhvern tímann misnotað þá. Snakk til dæmis.
Páll Jónsson, 27.9.2009 kl. 20:45

... guði sé lof fyrir geðveikina...

... verður mér stundum að orði, og meina það innilega. Hef nú komist að því undanfarið, að þetta eru orð að sönnu, og nú hef ég fengið það staðfest. Undanfarið hefur farið mikinn fréttin af Hemma Gunn, sem kvartar undan því að mega ekki eiga fleiri en 5000 - segi og skrifa FIMMÞÚSUND - vini á fésbókinni, og ég hristi hausinn, og furða mig á því hvernig sé hægt að eiga FIMMÞÚSUND vini? Nú þarf ég ekki að velta þessu frekar fyrir mér, því það er alveg sama hvað ég reyni, ég get ALDREI skilið þetta, frekar en ýmislegt annað, því ÉG ER GEÐVEIK og því ekki á mínu færi að skilja "VENJULEGT" fólk.
Ég til dæmis skil heldur ekki tvískinnung í fari fólks, hef aldrei gert, og nú er það ljóst, ég mun ALDREI skilja það, vegna þess að ég er geðveik.
Það er allavega það eina sem skilur mig frá þessu venjulega fólki, að ég hef greinst með geðsjúkdóm, þau ekki, og því hlýtur geðveikin að vera valdur að skilningsleysi mínu.
Ég á fullt í fangi með að fylgjast með þeim örfáu vinum sem ég á á fésbókinni. Kannski vegna þess að það eru bara 24 tímar í mínum sólarhring, veit ekki með ykkar. Og á þessum 24 tímum þarf ég að nota 6 - 8 í svefn, aðra 6 -8 í vinnu (svona að jafnaði), þá eru bara 8 - 12 tímar eftir. Af þeim saxast duglega í ferðir fram og tilbaka þangað sem ég þarf að komast hverju sinni, dagleg þrif, dagleg heimilisverk (hef reyndar verið afskaplega löt við þau undanfarna daga) og svo þarf maður aðeins að nota af þeim í tómstundirnar. Þá eru nú ekki eftir margir tímar til að verja á fésbókinni, er það?
Ég hef heldur ekki tíma - eða vilja og löngun - í að eyða löngum stundum á hverjum degi í að baknaga fólk, eða rakka það niður fyrir hvernig það er úr garði gert, og snúa mér svo að viðkomandi og brosa mínu ljúfasta, og láta sem ekkert hafi í skorist. Allajafna segi ég nú fólki hreint út ef mér mislíkar eitthvað. Alveg eins og ég hef gert við barnaverndarstarfsfólk gegnum tíðina. Því það er einu sinni þannig, að enginn er yfir gagnrýni hafinn, og enginn er svo veikur, klikkaður, bilaður, geðveikur, skrýtinn eða snar, að hann megi ekki hafa sína skoðun á, og tjá hana.
Því ætla ég að endurtaka að hluta það sem ég hef sagt hér áður í færslu, en til að særa örugglega ENGAN, þá segi ég það svona:
SUMIR BARNAVERNDARSTARFSMENN HAFA HAFRAGRAUT Í HEILASTAÐ, OG ERU ENGAN VEGINN STARFI SÍNU VAXNIR.
Bara þannig að það sé á hreinu. Mín skoðun og ég stend við hana hvar sem er og við hvern sem er.
En ég held að þarna sé geðveikin líka að tálma mér sýn. Því ég fæ ENGAN VEGINN skilið aðgerðir barnaverndaryfirvalda í ákveðnum málum, eða endalausa áráttu þeirra til að setja leppana fyrir augun og neita staðfastlega að horfast í augu við sannleikann og staðreyndir.
Ég er reyndar að skrifa langa og ítarlega færslu um þau mál öll, þar sem ekkert verður dregið undan, en hún er enn ekki alveg tilbúin, einkum og sér í lagi vegna þess að ákveðnir barnaverndarstarfsmenn kunna greinilega ekki á ljósritunarvélina á skrifstofunni, eða að brjóta saman blöð og setja í umslag. 
Kannski þeir hafi farið í framheilaskurðaðgerð á heilablaði og fengið hafragrautinn þannig? Eða kannski ég hafi farið í framheilaskurðaðgerð á heilablaði, án þess að hafa minnsta grun um það, og fengið grautarslettu í stað gáfnanna? Ja, kona spyr sig...

P.S. Fyrir forvitna lesendur, upplýsist hér með að pabbahelgin hjá Hákoni bekkjarbangsa gekk vonum framar, og þurfti mikið sjaldnar að áminna það sett foreldra, heldur en hitt, og Hákon var voða glaður þegar hann kom í bekkinn sinn aftur á mánudaginn. Finnst hins vegar góð hugmynd að allir bekkir og allar fjölskyldur eigi eitt stykki Hákon á vísum stað, svona til að stemma stigu við fúkyrðaflauminum sem óneitanlega grípur fólk í miðri kreppunni.

Fyrst birt 6.2.2009 | 02:31

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Sigurðarson
þú ert snargeðveik kona... vissirðu það :)
Ég er hjartanlega sammála þér mín kæra hvað blessaða barnaverndina varðar. Þar vantar áþreifanlega innra eftirlit þar sem foreldrar geta komið sínum málum á framfæri eins og er í Bandaríkjunum í mörgum fylkjum. Ef kvartanir eru alvarlegar frá foreldrum í garð barnaverndaryfirvalda fer í gang rannsókn, og ef kvartanir reynast á rökum reistar sæta menn ábyrgð. Svo einfalt er það.
Varðandi stórvin minn hann Hemma Gunn... þá stórvorkenni ég honum að fá ekki að eignast nema 27 vini til viðbótar. Þó hann kannski þekki ekki alla þessa 4793 aðila sem eru komnir á vinalistan hans, þá lítur hann á FaceBook sem samskiptamöguleika, rétt eins og ég. Þarna eru margir á listanum hans sem annað hvort vilja kynnast honum eða finna þarna leið til að geta haft samband við hann bréfleiðis þegar mikið liggur við.
Eins og þú veist, þá er minn vinalisti kominn yfir 860, en munurinn á mér og Hemma er að þetta eru nánast allt vinir mínir. Restin er fólk sem ég þekki... suma mikið og aðra lítið... en nokkrir eru þarna sem eru tónlistarmenn sem hafa skellt sér á listann minn og haft af mér gagn sem dæmi.
Ég fór yfir listann minn í síðustu viku og taldi þar 32 aðila sem ég gat ekki skilgreint nákvæmlega. Það þýðir um 830 sem ég gat skilgreint... og hjálpi mér Heimdallur... Ekki grunaði mig að ég þekkti svona mikið af fólki, því það hrúgast enn inn á listann hjá mér. Eitthvað er af fyrirtækjum, hljómsveitum og mótorhjólaklúbbum þarna og er það einnig mjög sniðug leið til að maður geti fylgst með útsölum, skemmtunum og þessháttar.
Svo niðurstaðan er sú hjá mér að við Hemmi erum bara svo sniðugir... sjáðu til, að við lítum á Facebook að hluta til afþreygingar og skemmtunar, vinnu og hagkvæmni, en ekki einungis til persónulegra nota á milli góðvina.
Aðrir gera það og þekki ég nokkra. Þeir eru sem dæmi með læstan prófíl og lái ég þeim það ekki.
Svo er nú það.
Baldur Sigurðarson, 6.2.2009 kl. 10:33
2 Smámynd: Baldvin Jónsson
Hemmi Gunn minnir mig bara á einn gamlan góðan frasa: "Men, I wish I had his problems"
Baldvin Jónsson, 9.2.2009 kl. 01:20
3 identicon
Stelpuskottið mitt....þetta er nú bara fjandi góð færsla hjá þér!
Ætla nú ekki mikið að tjá mig um þessi barnaverndarmál....ég er að hugsa um að leyfa mér að sofa í nótt og ég verð svo örg þegar ég fer að tala um þetta að það borgar sig bara ekki fyrir mig.
Ætla að láta nægja að segja bara....of mörg dæmi af "mistökum" hljóta að kalla á endurskoðun!
Hvað varðar Hemma Gunn og vini....gott mál, ég hef ekki verið svo mikið á ferðinni að ég komist upp í helming Ofurs-vina en ég er næstum viss um að ég myndi ekki vilja segja nei við vinarboði einhverra kunningja sem vilja hafa mig á listanum hjá sér.
Hitt er svo annað mál að vinir eru ekki bara vinir....og hvenær þekkir maður einhvern nógu vel til að geta sagt með sanni að hann sé vinur manns?!
Skrifa meira síðar....satt best að segja þá fékk ég dálítið dásamlegt sent rétt í þessu sem setti mig alveg út af laginu. Þetta alvarlega málefni hjá þér verðskuldar meiri eftirtekt og ég bara get ekki einbeitt mér í hláturskasti nægjanlega vel úr því sem komið er!
Sendi þér þetta á emaili hon....settu þig í stellingar, þú urlast!!!!
Hringi svo í þig um hádegið darling!
Luvya!
Fysið (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 05:22
4 identicon
Meira blogg....meira blogg!
Luvya grlfrd!
Fysið (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 03:08

... spyr mig hvort ég hafi lent í tímavél, og hrokkið til ársins 1962...

...þegar ég les þessa frétt, en þó einkanlega ummæli geðlæknanna sem voru dómkvaddir að beiðni gerandans. Orðrétt segja þeir að: Líklegt megi þá telja að maðurinn geti verið hættulegur börnum, sérstaklega ókynþroska stúlkum, en barnagirnd sé almennt ekki álitin „vel meðhöndlanlegt ástand."
Döööööööööööööööhhhhhhhhhhhhhh!!!!!!!!! Heldur fólk virkilega að menn DETTI óvart með fingurinn inn í kynfæri óþroska stúlku? Hvar hafa þessir aðilar alið manninn undanfarna áratugi? Ja, kona spyr sig...

mbl.is Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
Fyrst birt 6.2.2009 | 01:51

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jónsson
Nú skil ég ekki alveg... er ekki "meðhöndlun erfið - hætta gagnvart börnum" einmitt viðhorfið í dag?
Páll Jónsson, 6.2.2009 kl. 04:49

... af bekkjarbangsa og barnavernd....

... varð mér svo mikið bloggmál, að ég gat ekki stillt mig svona rétt fyrir nóttina að skrifa eitt lítið barnabangsaverndarblogg.
Eins og lesendur mínir vita - flestir allavega - þá eru barnaverndarmál mér mjög hugleikin. Og nú er mér allri lokið.
Þannig er að ég á vinkonu. Og hún á lítinn 8 ára dreng, sem við skulum kalla Ara - þó hann heiti það ekki í raun og veru, þrátt fyrir að vera með blá augu (allavega svona að mestu leyti) - svona til að vernda viðkvæmar sálir. Ég stóð í þeirri meiningu - þangað til í kvöld - að þessi vinkona mín væri alger fyrirmyndaruppalandi. En ekki lengur. Og hefst þá lesturinn:
Ari litli kom heim úr skólanum í dag, með Hákon bekkjarbangsa með sér. Þetta er sumsé einhverskonar vináttuverkefni í bekknum hans Ara, bekkjarfélagar skiptast á um að sinna Hákoni bekkjarbangsa, og umönnun hans fylgir ströngum reglum.
Mjög gott mál, og alveg til þess gert að efla félagsþroska barna, og vekja þau til umhugsunar um að orð geta sært. Það er þó öllu verra með foreldra Ara. Hann er sjómaður, hún er dyravörður. Biluð blanda, en gengur upp einhverra hluta vegna. Nú hinsvegar hellast yfir mig áhyggjur af Ara litla, sem er bara átta ára trítill, og þeim skelfilegu aðstæðum sem hann elst upp við.
Víkur nú sögunni aftur að Hákoni bekkjarbangsa. Það má semsagt ekki geyma Hákon ofaní tösku, meðan öðru er sinnt, því svoleiðis gerir maður ekki við vini sína. Mamman sætti sig við að hafa lítið loðið kvikindi á eldhúsborðinu, án mikilla vandkvæða. Öllu verra var, þegar foreldrarnir fóru að ræða einhver kreppumál, og upp úr öðru þeirra hrökk: "Andskotans........."   Þá leit Ari litli strangur á foreldrana og benti þeim kurteislega á að Hákon væri viðstaddur, og hvort þau væru til í að gæta orða sinna. Foreldrarnir litu hvort á annað, og reyndu eftir megni að hlægja ekki, og lofuðu öllu fögru. Ari litli tók gleði sína á ný, spjallaði við Hákon, og við foreldrana um daginn og veginn.
Þá tók heimilishundurinn sig til og prumpaði. Þá gall í húsmóðurinni: "Birta þó, ertu að prumpa???" Og enn litu blá augu upp, mun alvarlegri en í fyrsta skiptið:"Mamma, ég var að segja þér, að tala ekki svona dónalega þegar Hákon heyrir til!" Þannig að það má semsagt hvorki blóta, né segja prump eða kúkur nálægt Hákoni. OK, þetta urðu foreldrarnir að sætta sig við.
En nú tók ekki betra við. Því Ari litli þurfti að hendast úr efri byggðum borgarinnar alla leið vestur í bæ, á skátafund, og að sjálfsögðu var Hákon bekkjarbangsi með í för. Í þessum ferðum eru oft fjörugar samræður hjá litlu fjölskyldunni, enda hafa þau ÖLL mjög gaman af því að tala. Og umræðuefnin eru margvísleg. En nú brá svo við, að megnið af leiðinni sat litla fjölskyldan í þögn. Ískaldri þögn.
Hversvegna?
Vegna þess að Hákon bekkjarbangsi þolir ekki svona talsmáta! Þegar foreldrarnir höfðu báðir misst út úr sér Helv.... og Andsk... einu sinni eða tvisvar, og spurt hvers vegna Hákon héti Hákon en ekki Siggi og hvort það mætti þá kalla hann Konna, og fengið ískalt augnaráð úr aftursætinu, þar sem þeim var kurteislega bent á að Hákon héti Hákon, af því hann heitir Hákon en ekki Siggi, og að það mætti ekki kalla hann Konna, því það væri ljótt að uppnefna aðra, og maður ætti ekki að blóta svo Hákon heyrði til, þá féllust þeim algerlega hendur og hættu bara að tala!!
Semsagt: Niðurstaðan er þessi. Vinkona mín, og maðurinn hennar, eru með öllu óhæf til að ala upp þennan litla átta ára trítil, því þau nota greinilega blótsyrði í aðra hvora setningu, eru endalausir stríðnispúkar, og eru greinilega í áhættuhóp eineltisbullna.
Nú liggur fyrir að það er starfsdagur í skólanum hans Ara á morgun, og Hákon bekkjarbangsi því kominn til að vera fram á mánudag! Læt ykkur vita um framvindu mála á þessu heimili, og hvort ég neyðist til að hringja í barnavernd strax á laugardag!
Hvað skyldi barnavernd hafa um þetta mál að segja? Ja, kona spyr sig....


Fyrst birt 30.1.2009 | 03:11

Athugasemdir

1 identicon
Ó, darn....þú ert alveg dásamleg....ROFL!!!!
Mín ráðlegging:
Taktu niður vaktsíma barnaverndar yfir helgina og settu miða með númerinu á ísskápinn....með rauðum Artline 720 helst.
Hví?
Jú....það eru allar líkur á að þessi hreinskilni,sjálfstæði 8 ára drengur gefist upp á slæmu uppeldi "fyrirmyndar" foreldranna og strjúki með nesti og helstu nauðsynjar, til að forða bekkjarbangsanum frá því slæma hlutskipti að tilheyra þessari familíu í örfáa daga.
Svo ekki sé talað um heimilishundinn sem gerði heiðarlega tilraun til að "smakka" aðeins á litla bangsanebbanum....jalla!
Fysið (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 03:26
2 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir
Nú er ég búin að finna vaktsímann, en átti reyndar bara grænan Artline 730, heldurðu að það sleppi? Hugur minn verður hjá litla átta ára trítlinum og Hákoni ógurlega alla helgina. Og trúðu mér, ég kem til með að fylgjast grannt með gangi mála!!!!!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 30.1.2009 kl. 03:57
3 Smámynd: Ragnheiður
hehehehe snilld
Ragnheiður , 30.1.2009 kl. 07:45
4 identicon
LOL!
Heyrðu það er sko pabbahelgi hjá Hákoni
Ég ætla að hringja snöggvast gullið mitt og athuga hvernig gengur hjá þeim feðgum....kannski er komin ísköld þögn í Skerjafjörðin
Grænn penni gengur og mikið er ég glöð að þú tekur þetta svo alvarlega að vaktsíminn er kominn á sinn áberandi stað!
Viss'ég gæti stólað á þig elskan 
Fysið (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 18:48
5 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir
Frábærlega skemmtilegt og ég fylgist spennt með framhaldinu.
Væri ekki gott fyrir allar fjölskyldur að taka svona bangsa að sér í smá tíma?
Margrét St Hafsteinsdóttir, 30.1.2009 kl. 22:58
6 identicon
Ég er á sama máli og Margrét hér að ofan....maður hlýtur (á endanum) að taka sig á með svona viðkvæman bangsa á heimilinu.
En sko Berglind....pennavinir svara manni á emaili 
Fysið (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 02:04
7 identicon
Tíhíhí.
Vala (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 22:32
8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir
Það er oft erfitt að kenna gömlum hundi að sitja, jafnvel með fulltingi Hákons.
Helga Magnúsdóttir, 3.2.2009 kl. 19:01

...lítið títt...

... af suðurvígstöðvum. Ég hef þjáðst af lítilli blogg-löngun, en hef þó fylgst með bloggvinum, og umræðum í bloggheimum undanfarnar vikur og mánuði.
Mig langar að þakka allar fallegu athugasemdirnar við síðustu færslu, þær hafa yljað mér um hjartaræturnar.
Sorgin tengist hins vegar allt öðru en andláti Kötlu, og ég skrifa síðar um það mál allt. Ég hef bara ekki orku í það eins og sakir standa.
Annars fylgist ég bara með þjóðfélagsmálum, og velti fyrir  mér hvert við erum að stefna sem þjóð og þjóðfélag, og hvort eitthvað breytist í raun með nýrri ríkisstjórn. Er einhvernveginn skeptísk á að við sjáum raunverulegar breytingar. Ef ég gæti, held ég að ég myndi flytja á brott, og líta aldrei um öxl. En átthagafjötrarnir eru miklir, og því fylgist ég með, hugsa og mynda mér skoðanir, og kem til með að nýta mér kosningaréttinn í vor, hvenær svo sem boðað verður til kosninga. Og ég hvet alla til að gera slíkt hið sama. Það er ábyrgðarhlutur að nýta sér kosningarétt. Og þar á enginn að láta sitt eftir liggja.
Skyldum við sjá breytingar í grunnstoðum þjóðfélagsins í vor? Ja, kona spyr sig....


Fyrst birt 28.1.2009 | 18:46

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Sigurður
Breytingar verða! það er nánast öruggt.
Annars verður ekkert hægt að segja hvort góðar þær verði eða slæmar.
Það þurfum við að bíða með að vita..
Gísli Sigurður, 28.1.2009 kl. 19:29
2 Smámynd: Gísli Sigurður
tókstu eftir þessu Berglind! Þú ert ekki búin að blogga í þrjá mánuði, en ég kommentaði þrem korterum eftir færsluna ;)
Segðu svo að ég hugsi ekki um þig ahahaha
Gísli Sigurður, 28.1.2009 kl. 19:30
3 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir
Jamm tók eftir þessu elskan! Og fyrst þú biður um það:
ÞÚ HUGSAR EKKI UM MIG!
Átti ég annars ekki að segja það?????
Berglind Nanna Ólínudóttir, 28.1.2009 kl. 20:09
4 Smámynd: Gísli Sigurður
tjahh... þetta átti nú að vera kaldhæðni...
Gísli Sigurður, 28.1.2009 kl. 20:41
5 identicon
Sry hon....mín skoðun....engar breytingar!
VG strax farið að bakka (reyndar pínu ánægð með sumt af því)....Samfylkingin og Evrópusambandið....hmmm....gjaldþrot?!
Hvalurinn verður áfram friðaður....
....alltaf sama bullið + fullkomið óöryggi....endurtek, engar breytingar....sem er þó kannski skárra en slæmar breytingar!
Orkan kemur....mundu, þinn tími kemur
Krús og koss....Luvya grlfrd! 
Fysið (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 20:43
6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir
Það verða nú vonandi einhverjar breytingar. Jóhanna lætur eflaust til sín taka.
Helga Magnúsdóttir, 29.1.2009 kl. 12:40

... með tár á hvarmi og bros í öðru munnvikinu...

... kveð ég í kvöld stóra og merkilega konu.

katla.jpg
Katla mín dó um daginn eftir erfiða baráttu við krabbamein.
Ég kynntist Kötlu árið 1992, og gerði mér enga grein fyrir því þennan fallega haustdag í lok september, að þarna yrðu vatnaskil í mínu lífi. Hafði hreint enga hugmynd. Hún kenndi mér að lifa upp á nýtt, hún kenndi mér að þykja vænt um sjálfa mig, hún kenndi mér að bera virðingu fyrir sjálfri mér, hún kenndi mér að standa keik þegar boðaföllin gengu yfir. Hún kenndi mér svo margt og allt af því var fallegt. Hláturinn hennar ómar enn í huga mér, hnyttin tilsvör bergmála enn í kollinum á mér, og geislarnir hennar umlykja ennþá hjarta mitt. Mér er enn minnisstætt þegar ég byrjaði að sauma bútateppi, og hún hristi höfuðið yfir því að ég ætlaði að sauma teppi í höndunum - og það úr PAPPA!!!!Ég er enn að sauma þetta teppi. Það gengur misvel, en það mjakast. Og ég hugsa um hana í hvert skipti sem ég tek það upp.Ég gleymi heldur aldrei sögunni af því þegar hún bakaði ástarpungana fyrir manninn sinn, austur á landi. Hún BAKAÐI þá sko í ofninum!!! Það var dásamlegt að heyra hana segja þá sögu.
Ég hafði ekki reglulegt samband við Kötlu gegnum árin en alltaf hittumst við öðru hvoru, og ég var minnt á hvað mér þykir óendanlega vænt um þessa stóru konu, og hvað hún hafði mikil áhrif á líf mitt. Síðast hitti ég Kötlu í Hagkaup í vor sem leið. Hún var að spóka sig með ömmubarninu, ég var að versla á örverpið, með frumburðinn og tengdadótturina í fylgdarliðinu. Við fórum að spjalla í röðinni við kassann, hvað væri að frétta og hvernig gengi - þetta dæmigerða spjall um daginn og veginn sem ekkert skilur eftir sig. Ég spurði hvernig hún hefði það, hún svaraði bara nokkuð gott fyrir utan veikindin. Ég spurði hvaða veikindi, og hún stóð við hliðina á mér - enn jafn geislandi og alltaf - full æðruleysis og sáttar, og sagði: Ég er að deyja úr krabba, og er bara að njóta síðustu viknanna og mánaðanna.
Ég sagði ósköp fátt. Hvað er svo sem hægt að segja. Það sem ég sagði hins vegar ekki var það sem skipti máli. Ég sagði henni ekki hvað mér þætti undurmikið vænt um hana. Ég sagði henni ekki hvað ég ætti henni mikið að þakka. Ég þakkaði henni ekki fyrir lífgjöfina um árið. Ég sagði henni ekki að ég hugsaði til hennar á hverjum degi. Ég sagði henni að mér þætti vænt um hana, og að mér þætti gott ef hún vildi hitta mig yfir kaffibolla við gott tækifæri. Það tækifæri kom ekki. Og hér sit ég - með allt það sem ég ætlaði að segja henni seinna - og brosi og græt.
Frá þessum vordegi hef ég hugsað margt upp á nýtt. Ég hef tekið fullt af erfiðum ákvörðunum. Ég hef líka gefið áfram það sem Katla gaf mér. Það er trúlega besta leiðin sem ég á til að segja henni og sýna hvað hún var mér mikils virði, og hvað ég er henni þakklát. Hvað ég er lánsöm að hafa fengið að vera henni samferða, þó sú ferð hafi verið stutt. Ég er enn að gefa áfram það sem hún gaf mér.  Og ég held áfram að hugsa til hennar á hverjum degi. Held áfram að þykja undurmikið vænt um hana. Og held áfram að þakka henni lífgjöfina í huga mér.
Og heyri í kollinum til hennar.
Takk fyrir allt Katla mín.



Mig setur hljóða.

Fyrst birt 11.11.2008 | 06:21

Athugasemdir


1 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir
Birna Dis Vilbertsdóttir, 11.11.2008 kl. 10:36
2 Smámynd: Ragnheiður
Ragnheiður , 11.11.2008 kl. 10:42
3 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir
 Sendi þér samúðar kveðjur
Marta Gunnarsdóttir, 11.11.2008 kl. 21:21
4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir
Helga Magnúsdóttir, 11.11.2008 kl. 21:28
5 identicon
Ég samhryggist
 
Díana (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 08:28
6 Smámynd: Sporðdrekinn
Sporðdrekinn, 13.11.2008 kl. 21:16
7 identicon
Yndisleg frásögn, falleg, einlæg - og svo forláta elskulega skrifuð.. Alltaf verðum við ríkari af að njóta samvista og kynna við Öndvegisfólkið. Og Katla varð orsakavaldur, gaf þér annan sjónarhól... ný viðhorf að byggja á...
Ég votta þér hluttekningu mína ... og gleðst yfir að þessi yndislega kona skuli hafa verið í lífi þínu, elsku Berglind mín.
Helga Ág.
Grísli þinn - alltaf á brúnni
Helga Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 10:20
8 Smámynd: Agný
Samhryggist þér frænka Maður heldur alltaf að maður hafi nægan tíma en svo er nú ekki alltaf en þú getur alltaf huggað þig og yljað þér við góðu minningarnar og verið þakklát fyrir að hafa átt viðkomandi að vini. Gangi þér svo bara allt vel kæra. Stórt knús til þín og þinna.
Agný, 9.12.2008 kl. 02:34
9 Smámynd: Elísabet Markúsdóttir
Samúðarkveðja
Elísabet Markúsdóttir, 19.12.2008 kl. 13:43
10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir
Innilegar samúðarkveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.12.2008 kl. 01:12
11 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir
 Sendi þér samúðar kveðjur.
Ljós til þín
Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 01:03
12 Smámynd: Rafn Haraldur  Sigurðsson
Þó að þetta sé mög sorglegt, þá lýður mér einhvernveginn vel eftir að hafa lesið þetta. Þetta er svo  fallega skrifað já þér og sýnir hvað lífið getur verið virkilega fallegt og gott þrátt fyrir alla þá  erfiðleika sem við lendum í á æfinni.
Innilegar samúðarkveðjur
Rafn
Rafn Haraldur Sigurðsson, 28.1.2009 kl. 16:50
13 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir
flower002.gif
Anna Ragna Alexandersdóttir, 30.1.2009 kl. 00:17