Friday, February 19, 2010

Enn af kynferðisbrotum....

 ..... hér á landi. Mætti halda að ég hefði engan áhuga á öðru, en það er ekki rétt. Hins vegar er þessi málaflokkur í svo miklum lamasessi hér  að það er skelfilegt.
 Hér
má lesa frétt af Vísi, þar sem tveir þolendur fá úthlutað hæstu bótum mögulegum frá Bótanefnd Ríkisins, vegna brota sem framin voru á þeim. Rannsókn málsins var þó sjálfhætt, vegna þess að grunaður gerandi svipti sig lífi í kjölvar umfjöllunar DV á málinu.
Ég er í það minnsta fegin að Bótanefndin ákvað að láta viðkomandi þolendur fá bætur, en ekki firra sig ábyrgð vegna skorts á dómi í málinu.
Nú velti ég því fyrir mér hvort frumburðurinn minn getur sótt um bætur til Bótanefndar vegna brotanna sem framin voru á honum. Skyldi hann fá önnur svör af því níðingurinn sá svipti sig ekki lífi, en heldur uppteknum hætti við að svívirða börn? Ja, kona spyr sig.....

Fyrst birt 30.5.2008 | 22:28

No comments:

Post a Comment