Thursday, February 18, 2010

Flott á því!

Alltaf gaman að jákvæðri umfjöllun um mótorhjól og konur. Ég verð auðvitað að viðurkenna það að sem hjólastelpa finnst mér mjög gaman af því að sjá fleiri konur ánetjast þessu með hverju árinu. Og Ásthildur er flott kona.  Saknaði hennar að vísu á landsmóti bifhjólafólks um þarsíðustu helgi.
Jæja, best að fara að tygja sig af stað í næstu hringferð um landið. Er svo heppin að fá að fara með ameríska háskólanema um landið næstu vikuna.
Er þetta ekki besta starf í heimi? Kona spyr sig......

mbl.is „Konur eru fyrirmyndar bifhjólaökumenn“
Fyrst birt 21.7.2007 | 00:00

No comments:

Post a Comment