barnaverndarmál á Íslandi í dag. Mjög góð umfjöllun eftir Albert Örn Eyþórsson, og löngu tímabær. Sakna þess hins vegar að umfjöllunin verði meiri og gagnrýnni, því þessi málaflokkur snertir hverja einustu fjölskyldu í landinu, en er sjaldnast í umræðunni. Held að hinn "almenni borgari" standi í þeirri meiningu að þessi mál séu í fínu lagi hér, þegar raunin er allt önnur. Vissuð þið það til dæmis að við ráðningu í barnaverndarnefndir er fyrst og fremst um pólitískar ráðningar að ræða, og engar kröfur gerðar um hæfi einstaklinga til að fjalla um þessi mál, hvorki að fólk hafi menntun eða reynslu af uppeldismálum. Jón Jónsson, sem er í réttum flokki í sínu sveitarfélagi, en á hvorki konu eða börn, og er einbirni, alið upp af eldri foreldrum, er menntaður stýrimaður, og unnið alla sína ævi í frystihúsi, er jafn líklegur til að fjalla um uppeldi þitt á börnum þínum, og Stína sem er menntaður leikskólakennari, og á 4 börn, en er í vitlausum flokki, eða jafnvel engum flokki?
Fáránlegt ekki satt?????? Semsagt vanhæft fólk upp til hópa.
Fáránlegt ekki satt?????? Semsagt vanhæft fólk upp til hópa.
Fyrst birt 7.3.2007 | 17:43
Athugasemdir
Ps, gaman að þú skulir vera farin að blogga.....hef gaman af að lesa hjá þér:)
Ef það þarf ekki að vera vel fært fólk í þessum barnaverndarnefndum þá veit ég ekki hvar. Þar sem verið er að fara með mjög svo viðkvæm mál barna sem ekki geta borið hönd yfir höfuð sér. Algerlega sammála þér Berlind mín eins og svo oft áður.
Bið að heilsa Ása Hildur