... af suðurvígstöðvum. Ég hef þjáðst af lítilli blogg-löngun, en hef þó fylgst með bloggvinum, og umræðum í bloggheimum undanfarnar vikur og mánuði.
Mig langar að þakka allar fallegu athugasemdirnar við síðustu færslu, þær hafa yljað mér um hjartaræturnar.
Sorgin tengist hins vegar allt öðru en andláti Kötlu, og ég skrifa síðar um það mál allt. Ég hef bara ekki orku í það eins og sakir standa.
Annars fylgist ég bara með þjóðfélagsmálum, og velti fyrir mér hvert við erum að stefna sem þjóð og þjóðfélag, og hvort eitthvað breytist í raun með nýrri ríkisstjórn. Er einhvernveginn skeptísk á að við sjáum raunverulegar breytingar. Ef ég gæti, held ég að ég myndi flytja á brott, og líta aldrei um öxl. En átthagafjötrarnir eru miklir, og því fylgist ég með, hugsa og mynda mér skoðanir, og kem til með að nýta mér kosningaréttinn í vor, hvenær svo sem boðað verður til kosninga. Og ég hvet alla til að gera slíkt hið sama. Það er ábyrgðarhlutur að nýta sér kosningarétt. Og þar á enginn að láta sitt eftir liggja.
Skyldum við sjá breytingar í grunnstoðum þjóðfélagsins í vor? Ja, kona spyr sig....

Fyrst birt 28.1.2009 | 18:46
Athugasemdir
Það þurfum við að bíða með að vita..
ÞÚ HUGSAR EKKI UM MIG!
Átti ég annars ekki að segja það?????
VG strax farið að bakka (reyndar pínu ánægð með sumt af því)....Samfylkingin og Evrópusambandið....hmmm....gjaldþrot?!
Hvalurinn verður áfram friðaður....
....alltaf sama bullið + fullkomið óöryggi....endurtek, engar breytingar....sem er þó kannski skárra en slæmar breytingar!
Orkan kemur....mundu, þinn tími kemur
Krús og koss....Luvya grlfrd!